Tölvuleikjaspjallið

Tölvuleikjaspjallið

Eftir langa, LANGA bið, er þessi risastóri leikur loksins kominn út. Mörg ykkar hafa beðið í ofvæni eftir honum, mörg ykkar hafa lítið pælt í útgáfunni. Hvað sem því skiptir, þá er umfjöllunarefni vikunnar ELDEN RING. Nýjasta útspil From Software er unnið í samstarfi við hinn margrómaða George R.R. Martin. Leikurinn er margslunginn og flókinn og fokk erfiður, honum er held ég ekki betur lýst í eins stuttu máli. Arnór Steinn og Gunnar koma með sín fyrstu áhrif í þessum höskuldarlausa þætti. Það er margt að ræða! Klassarnir, landslagið, óvinirnir, bardagakerfið og ósanngirnin og geðveikin er ekki langt undan. Annar þeirra er ekki eins hrifinn og hinn ... getið þið giskað hvor er búinn að gefast upp? Þátturinn er í samstarfi við Elko Gaming. --- Í byrjun þáttar eru stutt skilaboð frá okkur til ykkar, kæru hlustendur. Það eru alls konar hlutir í gangi og vendingar sem við höfum ekki búist við. Endilega hlustið og við þökkum óendanlega fyrir allan ykkar stuðning!

98. Elden RingHlustað

09. mar 2022