Sendu okkur myndir eða myndskeið úr þínu nærumhverfi á netfrett@mbl.is eða með skilaboðum á Facebook-síðu mbl.is
3.4.2020
Víðir leggur enn og aftur áherslu á að fólk með einkenni haldi sig heima og sjái hvort það þurfi að fara í sýnatöku.
Ekki verður sett á útgöngubann um páska en fólk er eins og áður hvatt til að ferðast innanhús.
Eftir fjórar vikur verður farið að huga að afléttingu á þessum aðgerðum.
Víðir segir fínt að æfa sig um helgina að ferðast innanhús.
Þá er fundi dagsins lokið.
3.4.2020
Töluvert um ábendingar vegna samkomubanns en Víðir veit ekki um sektir.
Flestir taka leiðbeiningum vel.
3.4.2020
Þórólfur finnur fyrir miklum áhuga erlendis frá.
Víðir segir að margt sé einfaldara hér en annars staðar. Varað við því að bera Ísland við aðra og Ísland best í heimi syndrome er ekki viðeigandi núna.
3.4.2020
Þórólfur segir að smithætta sé mögulegt í búðum ef eihver smitaður gætir ekki að hreinlæti, handfjatli vöru, setji aftur á sinn stað, og svo taki annar vöruna.
3.4.2020
Þórólfur segir ekki nóg að nota bómullarhanska, fyrir þá sem eru með ofnæmi fyrir latex.
3.4.2020
Þórólfur segir grímur koma að gagni þegar unnið er í mikilli nánd við sjúlklinga.
Fyrir almenning gerir þetta lítið sem ekkert gagn og veitir falskt öryggi. Vafasamt að almenningur gangi með grímur.
Gagnsemi hjá veikum til að minnka líkur á því að dreifa út frá sér; til að mynda á ferðalagi.
3.4.2020
Þórólfur segir að allir ættu að búast við því að samkomubannið og aðgerðir sem fylgi því verði til 4. maí. Óvenjulegt væri að létta á einhverju fyrir þann tíma. Það getur gerst en það væri óvenjulegt.
3.4.2020
Þórólfur segir að hér sé ekki skoðað að taka sýni af handriðum og fleiri stöðum í húsakynnum smitaðra. Fólk á fullt í fangi með annað en það væri óskandi að hafa mannskap og tól í þetta.
Alma segir að veiran geti lifað upp í marga daga á sléttum fleti.
3.4.2020
Þórólfur segir að þeir sem smitast og eru ekki í sóttkví, það sé ekki vitað hvar það smitist.
Erfitt að finna nákvæmlega hvar það smitast.
3.4.2020
3.4.2020
Þórólfur kannast ekki við að erfiðara sé fyrir yngra fólk að fá sýnatöku.
3.4.2020
Dagamunur eru á greiningu sýna. Læknar telja sig þurfa að taka mismikið af sýnum og einnig breytilegt hvað Decode tekur mikið af sýnum.
Þórólfur segir jákvætt að hlutfall jákvæðra sýna er svipað.
3.4.2020
Þórólfur segir að smitsjúkdómalæknar verði að svara fyrir ákveðin lyf. Þeir taki ákvarðanir varðandi ákveðin lyf við meðferðum. Vega og meta þurfi hvern sjúkling fyrir sig.
3.4.2020
Páll segir innkaup á búnaði fari fram á miklum hraða og það séu miklar áskoranir. Stór lönd yfirbjóði og vörur skili sér ekki.
Spítalinn er með allar klær úti og óski eftir meira en hann þarf.
3.4.2020
Páll segir að ef litið er til að mynda til Svíþjóðar sé föst umbun til heilbrigðisstarfsfólks sem er að fást við og glíma við þennan vanda.
Fólk þarf að gjörbylta sínu vinnuumhverfi.