Folaldafille á spjóti með piparsósu og kartöflusmælki

Hráefni

  • 120 gr á mann af folaldafille. eða öðrum meyrum vöðva
  • 1 box sveppir
  • 1 stk rauð paprika
  • 1 stk rauðlaukur
  • 1 stk kúrbítur
  • 120 gr á mann af smáum kartöflum
  • 1 matskeið svartur pipar mulinn
  • 1 matskeið hafsalt gróft
  • 1 teskeið sojasósa
  • 1 desilíter matarolía
  • 1 desilíter 10% sýrður rjómi
  • 1 teskeið flórsykur
  • 2 grillspjót á mann

Fyrir 4

Innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr.
120 gr á mann af folaldafille eða öðrum meyrum vöðva.
1 box sveppir
1 stk rauð paprika
1 stk rauðlaukur
1 stk kúrbítur
120 gr á mann af smáum kartöflum
1 matskeið svartur pipar mulinn
1 matskeið hafsalt gróft
1 teskeið sojasósa
1 desilíter matarolía
1 desilíter 10% sýrður rjómi
1 teskeið flórsykur
2 grillspjót á mann

Aðferð

Sneiðið kjötið í teninga og þerrið, leggið síðan í skál ásamt sojasósu og smá matarolíu.
Setjið kartöflurnar yfir í suðu, gætið þess að sjóða ekki of lengi.
Skerið grænmetið í kubba sem eru u.þ.b. 2,5 cm á kant, og leggið til hliðar.
Þessu næst er grænmetið og kjötið þrætt á grillspjótin og kryddað með pipar og smá salti(ath að sojasósan er sölt).
Spjótin eru síðan steikt á grillpönnu í u.þ.b. 2 mín á hverri hlið.
Sósan er útbúin á meðan kjötið er á pönnunni. Blandið saman sýrðum rjóma, u.þ.b. 1 teskeið af svörtum pipar, flórsykrinum og smá salti.
Framreitt með kartöflusmælki og piparsósu. En einnig getur verið gott að láta smá ferskt salat fylgja með til að létta aðeins réttinn.

Uppskrift: Gott, hollt og ódýrt

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert