Kjúklinga Fajitas

Kryddlögurinn er galdurinn á bak við vel heppnaðar Fajitast. Hér er ein útgáfa sem að hentar vel fyrir kjúkling.

Kryddlögur

  • 1/2 dl ólífuolía
  • safi úr einni sítrónu
  • 3 pressaðir hvítlauksgeirar
  • 2 tsk óreganó
  • 2 tsk cummin
  • 1 tsk paprika
  • 1 tsk chiliflögur
  • 1 tsk chili
  • 1 tsk salt

Blandið öllu saman og setjið í ziplock-poka (eða skál). Skerið kjúklingabringur eða kjúklingalæri í strimla og blandið saman við marineringuna. Látið liggja í leginum í 1-2 klukkustundir.

  • 2 paprikur
  • 2 rauðlaukar

Skerið paprikur í strimla og lauk í sneiðar.  Mýkið í olíu á pönnu. Takið af pönnunni og geymið.

Hellið marineringunni frá. Steikið kjúklinginn í 5 mínútur. Bætið þá paprikunni og lauknum aftur út á pönnuna. Hitið.

Berið fram með heimatilbúnu salsa og guacamole, sýrðum rjóma, rifnum osti og tortillapönnukökum.

Uppskrift: vinotek.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert