„Þetta er réttur sem hefur fylgt mér lengi og klikkar aldrei. Ofureinfaldur í gerð, með fullt af grænmeti og frábær með góðu salati og tagliatelle. Hef oft boðið gestum upp á hann og hann hefur alltaf vakið mikla lukku. Uppskriftin er ekki heilög og tilvalið að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum,“ segir Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt.
Kjúklingabringur með rjómaosti og sólþurrkuðum tómötum
Hráefni:
3-4 kjúklingabringur
2 msk. olía af sólþurrkuðum tómötum
sítrónupipar
salt
1 saxaður laukur
6-8 sneiddir sveppir
2 sneiddar gulrætur
4-6 sólþurrkaðir tómatar eða eftir smekk
1 stór teningur kjötkraftur
1 dós rjómaostur m/sólþurrkuðum tómötum
1/2 peli rjómi
timian
Aðferð: