„Kjúklingur fyrir heimska“

Kjúklingur fyrir heimska.
Kjúklingur fyrir heimska. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

„Þennan kjúkling hef ég eldað frá því ég byrjaði að búa. Uppskriftina fann ég á netinu og mig minnir að hún hafi þar borið nafnið „Chicken for dummies“. Þar sem uppskriftin var þá einungis til einkanota þá fékk hún nafnið „Kjúklingur fyrir heimska“.

Síðan þá hafa margir beðið um og fengið uppskriftina, svo nafninu verður ekki breytt úr þessu. Hugmyndin með þessari nafngift er hinsvegar sú að kjúklingurinn er svo ofureinfaldur í gerð að nær ómögulegt sé að klúðra honum. Þetta er því skotheld uppskrift fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í eldhúsinu.
Kjúlli fyrir heimska er með fyrstu grillréttum sem ég elda þegar sólin fer að skína og eftir öll þessi ár stendur hann enn fyrir sínu og er í uppáhaldi hjá öllum fjölskyldumeðlimum,“ segir Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á gulur, rauður, grænn og salt.

Kjúklingur fyrir heimska

3-4 kjúklingabringur
1 dl tómatsósa
2 hvítlauksrif, pressuð
1 kúfuð msk hunang
2 tsk paprikuduft
salt
pipar

Aðferð:

  1. Blandið öllum hráefnunum (fyrir utan kjúklinginn) saman í skál og saltið og piprið eftir smekk. Setjið kjúklinginn því næst út í marineringuna. Látið kjúklinginn liggja í marineringunni í smá tíma, því lengur því betra.
  2. Grillið kjúklinginn og berið síðan fram með góðu kartöflusalati.
Kjúklingur fyrir heimska.
Kjúklingur fyrir heimska. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert