Grillaðar tígrisrækjur með hvítlauk

Risarækjur eru sumarlegur matur.
Risarækjur eru sumarlegur matur. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt er nýkomin frá Barcelona. Þessar tígrisrækur eru innblásnar af þeirri ferð. 

Fyrir 2-3
600 g tígrisrækjur, t.d. frá Sælkerafiski
60 ml ólífuolía
5-6 hvítlauksrif, smátt söxuð
fersk steinselja, söxuð
klípa af chilíflögum
sjávarsalt
pipar

  1. Blandið olíu, hvítlauk, steinselju og tígrisrækjum saman í skál, saltið og piprið. Látið marinerast í klukkustund.
  2. Takið tígrisrækjurnar úr marineringunni og þræðið upp á grillpinna. Grillið við meðal hita í um 2 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær hafa fengið gullinn lit (varist að grilla þær of lengi)
  3. Berið fram einar og sér eða með tagliatelle og bætið þá við olíu og saltið síðan og piprið að eigin smekk.
Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert