Chablis-kjúklingur og 40 hvítlauksrif

Ragnar Ingvarsson elskar hvítlauk að eigin sögn og notar hann …
Ragnar Ingvarsson elskar hvítlauk að eigin sögn og notar hann óspart. youtube.com

Fjórði þáttur af Lækninum í eldhúsinu frá Ragnari Ingvarssyni er kominn í loftið. Í þessum þætti sýnir hann okkur hvernig má matreiða kjúkling á tvo vegu. Hérna notar hann hvítlauk óspart, dásamlega girnilegt.

Chablis-kjúklingur

Þessi réttur varð til á ferðalagi okkar fjölskyldunnar um Frakkland haustið 2009. Við leigðum okkur stóran húsbíl og keyrðum sem leið lá frá Svíþjóð til Frakklands í gegnum Danmörku, Þýskaland og Holland. 

Þegar komið var til Chablis-héraðs stoppuðum við í bæ sem ber sama nafn og reyndist vera rómantískur smábær í norðanverðu Búrgúndarhéraði við bakka árinnar Serein. 

Við komum inn í bæinn síðdegis. Þegar við ókum yfir brúna inn í miðbæinn stóð yfir brúðkaup og allt var blómum skreytt. Við lögðum bílnum í miðbænum og röltum í rólegheitum upp aðalgötuna og sóttum hráefni; kjúkling til slátrarans, ferskan hvítlauk, kantarellusveppi á grænmetismarkaðinn, sýrðan rjóma, skalotlauk og dijon-sinnep í litla kaupfélagið við götuna. 

Eftir að hafa staldrað við á kaffihúsi ókum við í rólegheitum á vínekru Jean-Marcs Brochard og lögðum bílnum við yfirgefna kirkju og elduðum kvöldverð. Og til varð þessi réttur. 

Hráefni:

  • 1 heill kjúklingur
  • 3 msk Edmont Fallot dijon-sinnep
  • 4 hvítlauksrif
  • 250 g kantarellur (eða aðrir sveppir)
  • 2 skalotlaukar
  • salt og pipar
  • 400 ml sýrður rjómi
  • smjörklípa

Aðferð:

  1. Skerið hvítlaukinn og skalotlaukinn smátt og steikið í klípu af smjöri eða olíu þar til hann fer að mýkjast.
  2. Steikið niðurskorna sveppina í 5-10 mínútur og gætið þess að brenna þá ekki, þeir eiga að taka lit og brúnast en alls ekki brenna. 
  3. Á meðan sveppirnir taka lit hlutið þið niður kjúklinginn, bringur, leggi, læri og vængi. Saltið og piprið. 
  4. Takið grænmetið af pönnunni, bætið smjörklípu út á hana og bræðið.
  5. Bætið kjúklingabitunum á pönnuna með húðina niður og brúnið í 3-4 mínútur. Snúið þeim svo við.
  6. Hrærið dijon-sinnepið saman við sýrða rjómann.
  7. Bætið grænmetinu við kjúklinginn og því næst blöndunni af sýrða rjómanum og sinnepinu. 
  8. Saltið og piprið og látið sjóða upp varlega. 
  9. Setjið lok á pönnuna og eldið í 25 mínútur þangað til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
  10. Berið fram með soðnum hrísgrjónum og einföldu salati.


Kjúklingur með 40 hvítlauksrifjum

Hvítlaukur er rauður þráður í þessari bók. Ég elska hvítlauk og þessi réttur er minn ástaróður til þessa dásamlega hráefnis. Ég er algerlega sannfærður um heilunarmátt hvítlauks, sama hvað niðurstöður tvíblindra rannsókna segja. Fátt fer betur með hvítlauk en að baka hann í hýðinu með kjúklingi. Þegar kjúklingurinn er bakaður hefur hvítlaukurinn soðnað og karamellíserast í hýðinu þannig að allt rammt bragð hefur breyst í ljúffenga hvítlaukssætu sem er svo góð að hægt væri að smyrja henni ofan á brauð.

Sumir myndu segja að það væri fullmikið af því góða að nota allan þennan hvítlauk en þegar
hann bakast á þennan hátt kemur hann næstum í staðinn fyrir sósuna. En bara næstum.

Hráefni

  • 1 heill kjúklingur
  • jómfrúarolía
  • salt og pipar
  • ferskt tímían
  • 40 hvítlauksrif
  • 1 gulur laukur
  • 2 sellerístangir
  • 2 gulrætur
  1. Nuddið kjúklinginn upp úr jómfrúarolíu, tímíani, salti og pipar.
  2. Skerið grænmetið og leggið í botninn á eldföstu móti.
  3. Setjið kjúklinginn ofan á grænmetið og raðið síðan hvítlauksrifjunum, ennþá í pappírnum, meðfram kjúklingnum.
  4. Bakið í rúmlega eina og hálfa klukkustund eða þar til kjarnhiti er kominn í 82 gráður.

Berið fram með hrísgrjónum, salati og einfaldri veloute-sósu

„Þessi réttur varð til á ferðalagi okkar fjölskyldunnar um Frakkland …
„Þessi réttur varð til á ferðalagi okkar fjölskyldunnar um Frakkland haustið 2009,“ segir Ragnar. youtube.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert