Skyggnst inn í ferlið á bak við Omnom-súkkulaðið

Áhugasamir frá tækifæri til að kynnast Omnom-súkkulaðinu betur á HönnunarMars.
Áhugasamir frá tækifæri til að kynnast Omnom-súkkulaðinu betur á HönnunarMars.

„Sýningin snýst um að sýna ferlið á bak við súkkulaðið frá Omnom. Við verðum með tvær innsetningar, önnur sýnir ferlið frá því að vera með kakóbaunir í höndunum þar til það er orðið að súkkulaði og hin sýnir hönnunarferlið,“ útskýrir André Úlfur Visage, hönnuður og einn af eigendum Omnom, um sýningu Omnom á HönnunarMars 2016.

„Við erum eini íslenski súkkulaðiframleiðandinn sem býr til súkkulaði beint úr kakóbaunum,“ segir Andre Úlfur en Omnom flytur inn baunir frá til dæmis Madagaskar, Tansaníu og Níkaragúa. Ferlið á bak við súkkulaðið er spennandi og nokkuð flókið en teymið á bak við Omnom vill leyfa fólki að skyggnast inn í það ferli, allt frá því þegar baunirnar koma til landsins, þær eru ristaðar og meðhöndlaðar á sinn einstaka hátt og þar til súkkulaðinu er hellt í mót og pakkað inn í höfuðstöðvum Omnom.

Gestir sýningarinnar fá ekki einungis að fræðast um ferlið á bakvið Omnom súkkulaðið heldur fá þeir einnig tækifæri til að pakka súkkulaðinu í umbúðir og myndskreyta þær. Gestir fara því heim með sína eigin útgáfu af Omnom súkkulaði.

Flytja brátt í stærra húsnæði

Aðspurður hvað sé framundan segir André að töluverðar breytingar séu á döfinni. Á næstu mánuðum mun Omnom flytja úr mjög litlu húsnæði yfir í stærra húsnæði sem gerir þeim meðal annars kleift að búa til fleiri tegundir, en ýmislegt fleira spennandi kemur í ljós á næstu vikum að sögn André. „Við höfum átt fullt í fangi með að anna eftirspurn. Nýja húsnæðið verður á hinum nýju sælkeraslóðum Reykjavíkur eða á Grandanum, nánar tiltekið á Hólmaslóð 4 og sýning Omnom á HönnunarMars verður í hluta þess húsnæðis.“ 

Skrautlegar umbúðir Omnom

Omnom súkkulaðið ætti ekki að fara framhjá neinum í búðarhillunum enda eru umbúðirnar utan um súkkulaðið ansi litskrúðugar og skrautlegar. Hönnun umbúðanna var í höndum André Úlfs sem lagði áherslu á að þær væru vandaðar og skemmtilegar. Umbúðirnar eru gerðar úr hörðum pappa, skreyttum teikningum eftir Andre Úlf og minna helst á umslag. Omnom súkkulaðitegundir Omnom kom fyrst á markað í lok árs 2013, en á bak við Omnom standa fjórir sælkerar og eigendur, þeir André Úlfur, Kjartan Gíslason, Karl Viggó Vigfússon og Óskar Þórðarson. 

Umbúðirnar utan um Omnom eru einstakar.
Umbúðirnar utan um Omnom eru einstakar.
Baunirnar eru ristaðar í höfuðstöðvum Omnom, mislengi eftir tegund súkkulaðisins.
Baunirnar eru ristaðar í höfuðstöðvum Omnom, mislengi eftir tegund súkkulaðisins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert