Portúgalskur saltfiskur

Það er tóm sæla að komast í mat hjá Albert.
Það er tóm sæla að komast í mat hjá Albert. Árni Sæberg

Albert Eiríksson borðar ekkert rusl, það er á hreinu. Í haustveðrinu stingur hann upp á gómsætum saltfiski.

Portúgalskur saltfiskur - Gomes de Sá

1 kg saltfiskur, útvatnaður

2 kg kartöflur

2 b. mjólk

3 laukar

1/2 b. ólívuolía

3-4 hvítlauksrif, marin

pipar (salt ef þarf)

4 harðsoðin egg

20 svartar ólífur

steinselja

Sjóðið fiskinn í mjólkinni og látið kólna í soðinu. Sjóðið kartöflurnar, flysjið þær og skerið í bita. Takið fiskinn í sundur með fingrunum ( ekki of fínt) og blandið saman við kartöflurnar og setjið í eldfast form. Skerið laukinn í tvennt og síðan í sneiðar, steikið hann í hluta af olíunni. Bætið hvítlauk saman við og restinni af olíunni og látið malla í nokkrar mínútur. Setjið yfir fiskinn. Bakið í 40 mín. við 150°C. Skerið eggin í tvennt og setjið yfir ásamt ólífum og steinselju áður en borið er á borð.

Albert Eiríksson heldur úti matarblogginu Albert Eldar.
Albert Eiríksson heldur úti matarblogginu Albert Eldar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert