Klikkaður Kahlúa-ostur með pekanhnetum

Kahlúa-aðdáendur sameinist! Ný hamingja er fundin.
Kahlúa-aðdáendur sameinist! Ný hamingja er fundin. Linda Björk

Linda Björk Ingimarsdóttir gourmet-séní hjá Eatrvk.com er gift manni sem er mikill Kahlúa-aðdáandi. Linda hitti hann beint í hjartastað þegar hún bauð upp á þennan dásamlega Kahlúa-ost um áramótin. Það þarf ekkert að ræða það – þessi samsetning er fullkomin! 

„Í vetur fór ég í afmælisveislu hjá vinkonu minni Oddnýju Magnadóttur sem er matgæðingur par exelans. Þegar maður fer til hennar er maður oft kominn í matarhimnaríki og í þessari veislu var á boðstólum besti heiti ostur sem ég hef smakkað. Ég hef verið að hugsa um þennan ostarétt síðan og fékk ég svo uppskriftina hjá henni um daginn. Ég breytti henni aðeins til að passa við lítinn camembert eða brie og setti klípu af salti saman við sýrópið til að gefa því smá meiri dýpt. Þessi réttur er snilld í saumaklúbbinn, matarboðið eða bara fyrir kósýkvöld.“

Linda er snillingur í eldhúsinu.
Linda er snillingur í eldhúsinu. mbl.is/Ofeigur Lydsson
1 stk. camembert eða brie
1 1/2 dl Kahlúa-líkjör
1 1/2 dl púðursykur
1 1/2 dl pekanhnetur, gróft saxaðar
Hnífsoddur af Maldonsalti
Skerið efsta hlutann (toppinn) af ostinum og skiljið hann eftir á meðan osturinn er í ofninum.
Bakið ostinn á smjörpappír í um 15 mínútur við 175 gráður.
Setjið Kahlúa og sykur í pott og látið suðuna koma upp. Hitið svo sýrópið áfram við vægan hita í um 10 mínútur. Hrærið reglulega í sýrópsblöndunni.
Bætið pekanhnetum saman við sýrópið og leyfið þeim að liggja í blöndunni í um tvær mínútur.
Setjið ostinn í skál og takið toppinn af, hellið blöndunni yfir.
Berið fram með þessu pítabrauð, góðu snittubrauði eða kexi.
Kahlúa-ostur með pekanhnetum er lífsbreytandi unaður.
Kahlúa-ostur með pekanhnetum er lífsbreytandi unaður. Linda Björk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert