Til er fólk sem er afburða skipulagt þegar kemur að mat og skipuleggur matseðil vikunnar með góðum fyrirvara og undirbýr eftir kúnstarinnar reglum á sunnudögum.
Hér erum við með fimm Instagram-snillinga sem gera einmitt út á þetta og við hvetjum ykkur til að fylgja þeim og sjá hvað fer í kroppinn á þeim þá vikuna.
Vissulega gefur augaleið að það er mikill sparnaður – bæði peninga og tíma – fólginn í því að skipuleggja sig vel og margir ganga svo langt að setja matinn í box fyrir vikuna.
En sniðugt er það og tímasparandi og svo er alltaf gott að fá ferskar hugmyndir.
A post shared by Dutchie getting fit! 💪💪 (@floordeboor_fit) on Aug 7, 2016 at 5:51am PDT
Það er mikil fitness-stemning á þessum reikningi. En það er mikið af sniðugum hugmyndum þarna og nokkuð góðar leiðbeiningar.
A post shared by Danny Andrea (@dannysfitfood) on Sep 5, 2016 at 12:12pm PDT
Hér er allt framreitt í litlum boxum og fjölbreytileikinn hafður í fyrirrúmi.
Fallegt og ljúffengt.
A post shared by Koy Enriquez (@koy_enriquez) on Feb 10, 2017 at 11:51am PST
Þetta þykir okkur girnilegt.