Bounty-bitar heilsukroppsins

Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir er ákaflega mikil gleðisprengja. Hún er hafsjór af fróðleik um grasalækningar, hreint matarræði og heilsu og hún elskar mat. Hún nær á ótrúlega góðan máta að sameina þetta allt saman í hollu og bragðgóðu mataræði sem hún deilir gjarnan á vefsíðu sinni en þaðan er þessi uppskrift komin. 

„Þessi uppskrift er svo einföld og fljótleg að maður skutlar í hana á núll einni! Ég geri mér oft svona Bounty-bita og reyni að eiga þá til í frysti þegar mann langar í eitthvað sætt með kaffinu eða eftir mat á góðum degi,“ segir Ásdís en hún heldur reglulega námskeið um hreint mataræði.

Ásdís er vinsæll fyrirlesari og kennari en hún heldur úti …
Ásdís er vinsæll fyrirlesari og kennari en hún heldur úti síðunni grasalaeknir.is.


„Ég mæli líka með að þið prófið ykkur áfram með sætuefni en þið getið ýmist notað lífrænt hunang, agave, hlynsíróp eða notað sykurlaust síróp eins og Fibersirop, sem er nýtt lágkolvetna sætuefni. Þið getið ýmist skellt þessu í bita, rúllað í kúlur eða sett gúmmelaðið í sílikon-kökuform og haft sem kökubotn og brætt svo súkkulaðið yfir. Ég geri það mjög oft að gera úr þessu kökubotn, læt þetta aðeins taka sig í frystinum, bræði súkkulaðið yfir og sker svo í alls konar „chunky“ passlega bita og set í gott box og aftur í frysti til að eiga til góða. Mæli með Valor 70% súkkulaði með stevíu (no added sugar) eða Cavalier-súkkulaðinu (sykurlaust sætt) eða hvaða súkkulaði sem þið fílið, mér finnst líka 75% frá Naturata mjög gott.“ 

2 boll­ar kó­kos­mjöl
1 bolli fljót­andi kó­kosol­ía
Smá vanilluduft eða vanillustevía ef vill
1-2 mat­skeiðar líf­rænt aga­ves­íróp eða hun­ang
150 g dökkt líf­rænt súkkulaði

Aðferð:

  1. Öllu hrá­efn­inu, nema súkkulaðinu, er hrært sam­an í stóra skál. Blönd­unni er svo þjappað í form ofan á bök­un­ar­papp­ír. Þetta er haft í frysti í u.þ.b. 20-30 mín­út­ur.
  2. Þá er „kak­an“ tek­in út úr frysti og skor­in niður í hæfi­lega stóra bita. Súkkulaðið er svo brætt yfir vatnsbaði og bit­un­um velt upp úr súkkulaðinu.
  3. Bounty-bit­un­um er þá raðað á bök­un­ar­papp­ír og hafðir aft­ur inni í frysti í nokkr­ar mín­út­ur þar til súkkulaðið er storknað.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert