Syndsamlegt avókadó- og bananabrauð

Ljósmynd/Nadia´s Healty Kitchen

Bara nafnið á þessari dásemd ætti að fá meðalhjartað til þess að slá örar. Uppskriftin er fremur einföld og bráðholl og ekki spillir fyrir að brauðið er 100% vegan. Reyndar er boðið upp á hefðbundnari útgáfu þannig að þið stjórnið þessu sjálf. En mitt í öllu súkkulaðiátinu er þetta sem vin í eyðimörkinni. Dásamlega bragðgott og algjörlega ómótstæðilegt.

Uppskriftin er fengin frá blogginu Nadias Healty Kitchen sem er í miklu uppáhaldi. Þar er að finna urmul hollustuuppskrifta en höfundur þess hefur notað fæðuna til að vinna bug á hinum ýmsu kvillum með hollu og góðu mataræði.

Ljósmynd/Nadia´s Healty Kitchen

Syndsamlegt avókadó- og bananabrauð

  • 120 g spelthveiti
  • 55 g hafrar
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. kanilduft
  • 1/2 tsk. salt
  • 4 msk. stevía (eða sykur að eigin vali)
  • 4 msk./30 g kókossykur (eða sykur að eigin vali)
  • 2 stórir og vel þroskaðir bananar
  • 1 vel þroskað avókadó
  • 1 chia-egg (sem er búið til með því að blanda saman 1 msk. af chia-fræjum og 3 msk. af vatni) – eða þú getur bara notað venjulegt egg.
  • 2 msk. olía (canola, kókos eða hvað sem þú vilt)
  • 1/2 tsk. vanillu paste (eða 1 tsk. vanilludropar)

Aðferð

  1. Hitið ofninn upp í 180 gráður (160 gráður ef þið notið blásturinn)
  2. Skerið avókadóið í tvennt, takið steininn og skafið kjötið út og setjið í blandara ásamt banönunum. Blandið þar til mjúkt og fallegt.
  3. Bætið við chia-egginu - eða venjulega egginu, vanillunni og olíunni.
  4. Í stóra skál skuluð þið setja saman öll þurrefnunin og blanda vel.
  5. Hellið blautu hráefnunum saman við þau þurru og blandið blíðlega saman.
  6. Setjið blönduna í brauðform og bakið í 40-50 mínútur.

Næringarinnihald í hverri sneið:

  • Hitaeiningar: 166
  • Prótein: 3,2 g
  • Kolvetni: 24 g (6,9 úr sykri)
  • Fita: 7,7 g
  • Trefjar: 4,6 g
Ljósmynd/Nadia´s Healty Kitchen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert