Eldhúsið hjá Chrissy Teigen og John Legend

Teigen og Legend í eldhúsinu góða.
Teigen og Legend í eldhúsinu góða. Ljósmynd/Architectural Digest

Hún er meistarakokkur og því var ekki við öðru að búast en að eldhúsið hennar væri frekar svalt. Það er gott meira en svalt því það er sérlega vel heppnað og skemmtilega öðruvísi og eiginlega alveg í takt við Teigen sjálfa sem er ein sú skemmtilegasta í bransanum.

Myndirnar eru teknar á heimili hennar og eiginmanns hennar, John Legend, í New York. Það kom okkur á óvart hvað þau lita út fyrir kassann. Veggfóðrið bak við vaskinn setur tóninn, skáparnir eru skemmtilega óhefðbundnir en það al-flottasta eru barstólarnir sem minna mikið á hönnun Indiu Mahdavi, án þess að við getum fullyrt frekar um uppruna þeirra.

En hér fá kraftar Teigen að njóta sín og við verðum að segja eins og er að við erum ákaflega hrifin af þessu eldhúsi.

Þessir barstólar eru með þeim fallegri sem sést hafa.
Þessir barstólar eru með þeim fallegri sem sést hafa. Ljósmynd/Architectural Digest
Gylltur krani og veggfóður í bakgrunninum.
Gylltur krani og veggfóður í bakgrunninum. Ljósmynd/Architectural Digest
Hjónin eru sérlega skemmtileg.
Hjónin eru sérlega skemmtileg. Ljósmynd/Architectural Digest
Gott vinnupláss er í eldhúsinu og sex brennara gashelluborð.
Gott vinnupláss er í eldhúsinu og sex brennara gashelluborð. Ljósmynd/Architectural Digest
Eldhússkáparnir eru sérlega skemmtilegir og eldhúsið er langt frá því …
Eldhússkáparnir eru sérlega skemmtilegir og eldhúsið er langt frá því að vera einsleitt. Ljósmynd/Architectural Digest
Teigen er ánægð með útkomuna og segir gott að elda …
Teigen er ánægð með útkomuna og segir gott að elda í eldhúsinu. Ljósmynd/Architectural Digest
Hjónin á forsíðu Architectural Digest.
Hjónin á forsíðu Architectural Digest. Ljósmynd/Architectural Digest
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert