Nutella-ídýfa sem gleður í rigningu

Nutella-ídýfan hentar vel með ferskum berjum eða sem krem á …
Nutella-ídýfan hentar vel með ferskum berjum eða sem krem á kökur. mbl.is/Svava Gunnarsdóttir

Svava Gunnars, gourmet-grallari á ljufmeti.com, er með æði fyrir þessari ídýfu en hún er vinsælasta helgartrítið á hennar heimili enda sturlað góð.

Nutella-ídýfa – uppskrift frá Mitt Kök

  • 2,25 dl rjómi
  • 2,25 dl rjómaostur (ég var með frá Philadelphia)
  • 1,5 – 2 dl Nutella
  • 3 msk. flórsykur

Þeytið rjómann loftkenndan og léttan. Setjið rjómaost og flórsykur í aðra skál og hrærið saman. Hrærið Nutella saman við rjómaostinn. Hrærið að lokum þeytta rjómanum varlega saman við.

Setjið í skál og berið fram með ávöxtum, berjum og/eða banana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert