Mánudagsfiskur sem gleður andann

Einfaldur og góður fiskréttur sem heldur fjölskyldunni kátri.
Einfaldur og góður fiskréttur sem heldur fjölskyldunni kátri. mbl.is/https://ljufmeti.com

Matgæðingurinn Svava Gunnarsdóttir á ljufmeti.com er komin í sumarfrí í huganum og langar mest að fá sér eitt rauðvínsglas og grill öll kvöld en mánudagsfiskurinn er þó fastur punktur í sumrinu. „Eitt af því fáa sem heldur dampi hér heima þessa dagana er mánudagsfiskurinn. Þessi einfaldi fiskréttur var sérlega góður og er bara gerður á einni pönnu, sem hentar vel þegar maður vill halda frágangi og uppvaski í lámarki. Ég mæli með að prófa hann!“

Fiskur í sweet chilí

  • 1 púrrulaukur
  • 1 rauð paprika
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 2,5 dl rjómi
  • 0,5 dl rjómaostur
  • 1 dl sweet chili-sósa
  • 1/2 tsk. chili-krydd
  • 1/2 tsk. chili-flögur
  • 1 kjúklingateningur
  • salt
  • 900 g þorskur eða ýsa

Hakkið laukinn og skerið paprikuna í bita. Steikið laukinn mjúkan í smjöri og bætið síðan paprikunni á pönnuna og steikið aðeins áfram. Bætið öllum öðrum hráefnum fyrir utan fiskinn á pönnuna á látið sósuna sjóða saman í nokkrar mínútur. Bætið fiskinum á pönnuna og látið sjóða saman í 5-6 mínútur. Smakkið til með salti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert