Þessi kokteill er algjört sælgæti

Fjósakonute er kokteill sem lengi var með þeim vinsælustu á Kaffi Krók á Sauðarkróki. Kokteilinn er rjómakenndur með krydduðu biti og er í raun eins og fljótandi eftirréttur sem slær þig utan undir að hætti Kafteins Morgan. Matarvefurinn kom við á Króknum og leitaði uppi eina af þeim fáu konum sem kunna enn að blanda þetta gúmmelaði.

Við deilum hér uppskriftinni og vonum að þið njótið vel enda fátt betra en huggulegt fjósakonute að norðan.

Fjósakonute

  • 1 dl Malibu
  • 1 dl Baileys
  • 1 dl rjómi
  • 1 dl Captain Morgan romm

Aðferð:

Hrist með klaka og njótið í botn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert