Rabarbarabakan hennar Svövu

Volg rabbabarabaka með ís og vanilsósu er hin fullkomni sunnudagur.
Volg rabbabarabaka með ís og vanilsósu er hin fullkomni sunnudagur. mbl.is/ljufmeti.com

Matarbloggarinn Svava Gunnarsdóttir er stödd á Balí þar sem hún nýtur lífsins. Hún lætur það þó ekki stoppa sig í að deila ljúffengum uppskriftum og skemmtilegum hugleiðingum á síðu sinni ljúfmeti.com

Fyrsta færslan frá Balí var þó ákaflega íslensk og hljóðar upp á rabarbaraböku. Fullkomið með sunnudagskaffinu.

Rabarbarabaka með vanillu

  • 3 rabarbarar (ca 30 cm að lengd)
  • 1 dl sykur
  • 2 tsk vanillusykur
  • 1 tsk kartöflumjöl

Deig

  • 2 dl hveiti
  • 1 dl haframjöl
  • 4 tsk sykur
  • 150 g smjör
  • 1 tsk vanillusykur
  • síróp (ég notaði ljóst síróp sem kemur í brúsum, mjög þægilegt að sprauta beint úr flöskunni yfir bökuna)

Hitið ofninn í 200°. Skerið rabarbarann í ca 1 cm stóra bita. Smyrjið eldfast mót með smjöri og setjið rabarbarann í botninn á mótinu. Blandið sykri, vanillusykri og kartöflumjöli saman og stráið yfir rabarbarann.

Degið: Setjið hveiti, haframjöl, sykur, vanillusykur og smjör í skál og vinnið saman þar til myndast gróf mylsna. Dreifið henni yfir rabarbarann og endið á að láta síróp í mjórri bunu yfir bökuna (það á ekki að þekja hana alla). Bakið í um 25 mínútur, eða þar til bakan hefur fengið gylltan lit og rabarbarinn er orðinn mjúkur.

Uppskriftina af vanilusósunni má finna á ljufmet.com
Uppskriftina af vanilusósunni má finna á ljufmet.com mbl.is/ljufmeti.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert