Grillaður silungur með kryddsmjöri og smælki

Einfaldur og góður matur þar sem gæði hráefnisins stjórna för …
Einfaldur og góður matur þar sem gæði hráefnisins stjórna för og eldamennskan er í lágmarki. mbl.is/TM

Þessi var dúndur! Ég rétt stillti mig um að sleikja diskinn og ekki skemmir fyrir að rétturinn er frábærlega hollur. Fullt af prótínum, vítamínum og andoxunarefnum. Spregilkál er nefnilega frábær uppspretta af andoxunarefninu lipoic sýru og C og E vítamíni.

Fyrir 2 og barn 

Fiskurinn:
500 g silungur (2 flök sirka)
3 msk smjör
1 límóna
2 msk ferskt dill, saxað 
2 msk ferskt kóríander, saxað 
Smjör
Pipar
Álpappír 

Meðlæti:
200 g Grænkál eða Pak choi 
Spergilkálshaus
2 hvítlauksrif 
1/2 tsk salt 
2 msk olífuolía 

Allt sett í grillskál á grillið og grillað á háum hita í um 7 mínútur. Það má líka vel gera þetta inni á pönnu.

Kartöflur:
Smælki - sirka 10 stk 
Olía
Salt
Pipar
Garðablóðberg (timjan)

Skerið hverja kartöflu í tvennt og setjið í eldfast mót ásamt 2-3 msk af olíu.
Saltið með góðu sjávarsalti. Sirka 1/2 tsk.
 
Rífið blöðin af kryddinu ef notað er ferskt en annars skal strá um 1 msk yfir kartöflurnar og hræra vel. 

Bakið í ofni á grilli (200 gráður) í um 30 mín eða þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn. Gott er að hækka hitann aðeins í restina svo þær dökkni.

Fiskurinn aðferð:

Saltið og piprið fiskinn eftir smekk og leggið ofan á álpappír.
Setjið væna smjörklípu ofan á hvort flak ásamt 1 msk af limesafa og limesneiðum. (Sjá mynd) Því næst er ferska kryddinu stráð yfir og álpappírnum lokað.

Grillið á úti grilli í um 10 mínútur eða þar til fiskurinn fer að lýsast á lit. 

Virkilega gott!
Virkilega gott! mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert