Rabarbarapæ sem bræðir hjörtu

Rabbabarapæ eru dásamlega bragðgóð.
Rabbabarapæ eru dásamlega bragðgóð. mbl.is/Albert Eiríks

Rabarbara er auðvelt að rækta í görðum og er þetta gjöful planta. Margir kunna að meta sultur úr honum en ekki má gleyma því að hann er dásamlegur í ýmiss konar eftirrétti, ekki síst þegar hann er paraður með sætari ávöxtum, súkkulaði eða kryddum.

Það er enginn annar en Albert Eiríksson sem á þessa uppskrift að rabarbarapæi en nú fer hver að verða síðastur að fara út í garð og tína.

Rabbabarapæið hans Alberts
  • Rabarbari, ca. 4-5 leggir
  • 100 g dökkt súkkulaði
  • 100-150 g marsipan, skorið í bita
  • 1 ½ b. bláber
  • 200 g smjör
  • 2 dl sykur
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 2 dl hveiti
  • 1 tsk. vanilla eða vanillusykur
  • 2 egg

Aðferð:

Skolið rabarbarann og hreinsið, brytjið í 1-2 cm þykkar sneiðar. Setjið í eldfast form, vel botnfylli eða að vild. Stráið berjum, súkkulaði og marsipani yfir.

Bræðið smjör í potti, bætið út í þurrefnunum og loks eggjunum. Blandið vel saman. Hellið deiginu yfir rabarbarann. Bakið við 170°C í 25-30 mín. eða þangað til pæið er orðið gulleitt að ofan. Berið fram með rjóma eða ís.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert