Galdurinn á bak við heimsins bestu vöfflur

Sigti og buttermilk eru galdurinn en nota má súrmjólk í …
Sigti og buttermilk eru galdurinn en nota má súrmjólk í staðinn. mbl.is/Berglind Hreiðars

Berglind Hreiðarsdóttir, smjörkremsdíva á gotteri.is, hefur fundið galdurinn á bak við fullkomnar vöfflur.  „Ég verð að segja að þetta voru bestu vöfflur sem ég hef smakkað! Ég held að galdurinn liggi annars vegar í „buttermilk“ og hins vegar í sigtun á hveiti því svona silkimjúkt deig hef ég ekki áður augum litið.“

Heimsins bestu vöfflur

  • 5 egg
  • 225 gr. sykur
  • 720 ml mjólk
  • 180 ml „buttermilk“
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 140 gr. bráðið smjör
  • 570 gr. hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. salt

Þeytið saman sykur og egg þar til létt og ljóst.
Bætið því næst mjólk, „buttermilk“, vanilludropum og bræddu smjöri saman við. Til þess að útbúa buttermilk er mjólk hellt í skál og 1-2 tsk. sítrónusafi settar saman við og látið standa í um 5 mínútur.
Sigtið hveitið og blandið því ásamt lyftidufti og salti varlega saman við blönduna.
Þetta voru alveg um 25+ vöfflur og dugði vel fyrir tvær stórar fjölskyldur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert