Vinsælasti hristingurinn í Hreyfingu

Ágústa Johnson heldur mikið upp á þennan drykk.
Ágústa Johnson heldur mikið upp á þennan drykk. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nú þegar allir keppast við að koma kroppnum í lag og bæta heilsuna eftir sumarsukkið fannst okkur tilvalið að heyra í Ágústu Johnson og spyrja hvaða hristingur væri vinsælastur í Hreyfingu, líkamsræktarstöðinni sem hún á og rekur við góðan orðstír.

„Á.J. Special er vinsælasta boostið í Hreyfingu (Ágústu Johnson special) Ekkert pakkafæði í þessum drykk, bara hreint fæði og hollusta. Þessi er líka í uppáhaldi hjá mér... kakó og kanill klikka ekki!“

Drykkurinn er saðsamur og inniheldur holla fitu, andoxunarefni, magnesíum, trefjar …
Drykkurinn er saðsamur og inniheldur holla fitu, andoxunarefni, magnesíum, trefjar og annað góðgæti fyrir kroppinn. mbl.is/

1/2 avokadó
1 banani
1 kúfuð msk. kakóduft
3 döðlur
1 msk. hnetusmjör
1 tsk. kanill
1 bolli möndlumjólk
vel af ísmolum  

Allt sett í blandara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert