Jóladagatalið er bleikt í ár

mbl.is/Þorbjörg Marinósdóttir

Það er orðinn fastur liður í tilveru margra sælkera að fá aðventudagatal frá danska lakkrísmeistaranum Johan Bulow. Dagatalið er að venju forkunnarfagurt og smekklegt en liturinn í ár er bleikur sem er í senn afskaplega huggulegt og móðins.

Það er Epal sem sér um sölu eins og undanfarin ár en dagatalin eru einungis framleidd í takmörkuðu upplagi og því ljóst að sælkerar landsins þurfa að hafa vakandi augu til að missa ekki af herlegheitunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert