Morgunhristingurinn sem gerir daginn betri

Það er erfitt að toppa þetta í morgunsárið.
Það er erfitt að toppa þetta í morgunsárið. mbl.is/Jennifer Berg

Það skiptir máli að byrja daginn rétt og flestir myndu sjálfsagt taka undir að það væri glapræði að byrja daginn á nautasteik eða snakkpoka. Þessi hristingur er sérdeilis einfaldur en syndsamlega bragðgóður og það sem betra er... hann gerir daginn betri því manni líður svo vel í kroppnum eftir að hafa drukkið hann.

Það er Jennifer Berg sem á heiðurinn að þessari dásemd og það er sama hvað hún tekur sér fyrir hendur – hún gerir það vel. Sjálf segist hún elska avókadó og að þessi hristingur minni um margt á uppáhaldshristinginn hennar sem fáist á Joe and the Juice. Hún hafi fikrað sig áfram og sé virkilega sátt við útkomuna sem að öllum líkindum sé jafnvell hollari en fyrirmyndin.

Fyr­ir þá sem vilja lesa meira af snilld­ar­upp­skrift­um Jenni­fer er hægt að fylgj­ast með henni inni á Trend­net og á Jen´s Delicious Life.

Morgunhristingurinn sem gerir daginn betri

  • ½ frosinn banani
  • 2 avókadó
  • 2 dl möndlumjólk
  • ½ tsk. vanilluduft
  • 1 tsk. lime-safi
  • 1 msk. hunang

Aðferð:

Setjið í blandara og blandið uns tilbúið.

Dásamlega fallegur á litinn og bragðgóður.
Dásamlega fallegur á litinn og bragðgóður. mbl.is/Jennifer Berg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert