Ofnbakaður saltfiskur að portúgölskum hætti

Girnilegur og gómsætur saltfiskréttur.
Girnilegur og gómsætur saltfiskréttur. mbl.is/Hanna Þóra

Það er fátt meira viðeigandi á köldum kvöldum en saltfiskur sem bráðnar í munninum. Þessi snilldarréttur er í senn einfaldur og ómótstæðilegur. Hann kemur frá matargerðarmeistaranum Hönnu Þóru sem heldur úti Hanna.is. Hún segir réttinn oft á borðum hjá sér en stundum helmingi hún uppskriftina en þá sé hún mátuleg í eitt fat og dugi fyrir 4-5.

Ofnbakaður saltfiskur að portúgölskum hætti

  • 1,3 kg útvatnaður saltfiskur
  • 1 kg kartöflur
  • 4-6 laukar (600 g) – saxaður
  • 1-2 dl ólífuolía
  • 3-4 hvítlauksrif – pressuð
  • ½ l matreiðslurjómi
  • 2 dl mjólk
  • 200 g ostur
  • 3 stífþeyttar eggjahvítur
  • 3 harðsoðin egg
  • pipar, múskat, steinselja
  • Smjör og olía til steikingar

Verklýsing

  1. Saltfiskurinn soðin: Fiskurinn settur í vatn með köldu vatni og suðan látin koma upp.  Htinn lækkaður og fiskurinn er látin sjóða í u.þ.b. 10 -15 mínútur (háð stærð bitana).  ATH. Fiskurinn má alls ekki bullsjóða – þá verður hann þurr. Kartöflur soðnar: Kartöflur settar í kalt vatn og suðan látin koma upp. Hitinn lækkaður og kartöflurnar soðnar í u.þ.b. 20 mínútur.  Eggin soðin: Eggin sett í pott með köldu vatni og suðan látin koma upp.  Hitinn lækkaður og eggin látin sjóða í 8 – 10 mínútur
  2. Olía og aðeins að smjöri sett í pott. Hvítlaukur og laukur sett í pottinn – látið malla á lágum hita á meðan saltfiskur og kartöflur er soðið. Mikilvægt að laukurinn fái að malla góða stund á lágum hita – bragðið verður mildara og með smá sætum keim.
  3. Fiskurinn hreinsaður, skorinn í litla bita og bætt út í laukinn
  4. Mjólk/rjóma hellt í og verður kássan að þykkum jafningi
  5. Osturinn rifinn og 3/4 af honum bætt út í
  6. Steinselju og pipar bætt við
  7. Kartöflur flysjaðar, skornar í sneiðar og settar í botninn á smurðu eldföstu móti
  8. Smávegis af múskati stráð yfir
  9. Stífþeyttum eggjahvítum blandað varlega saman við fiskikássuna og hellt yfir kartöflurnar
  10. Eggjabátar settir ofan á, og 1/4 af rifna ostinum stráð yfir. Einnig gott að rífa parmesanost yfir ef hann er til
  11. Bakað í ofni við 180°C í 30-45 mínútur

Meðlæti

Borið fram með salati og nýbökuðu brauði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert