Ljótu kartöflurnar verðlaunaðar

Ari Edwald, stjórnarformaður Landbúnaðarklasans, Viðar Reynisson, framkvæmdastjóri Ljótu kartaflanna, og …
Ari Edwald, stjórnarformaður Landbúnaðarklasans, Viðar Reynisson, framkvæmdastjóri Ljótu kartaflanna, og Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Sjávarklasans. mbl.is/Sjávarklasinn

Ljótu kartöflurnar hlutu viðurkenninguna sem áhugaverðasti Matarsproti ársins, Matarsprotinn 2017 var veittur í Sjávarklasanum í gær.

Í fréttatilkynningu segir að markmiðið með Matarsprotanum sé að vekja athygli á þeim krafti og grósku sem einkennir nýsköpun í mat og drykk og kemur í kjölfarið á Matur og nýsköpun sem nýlega fór fram í Sjávarklasanum.

Að Matarsprotanum 2017 standa Íslenski sjávarklasinn og Landbúnaðarklasinn.

Matarsprotinn var fyrst veittur á síðasta ári og þá hlaut Eimverk Distillery viðurkenninguna fyrir framleiðslu á áfengi úr hágæða íslensku hráefni.

Ljótu kartöflurnar framleiða kartöfluflögur úr stórum og aflöguðum kartöflum sem hingað til hafa ekki verið nýttar til hefðbundinnar matreiðslu. Ljótu kartöflurnar leitast alltaf við að nota innlent hráefni og flögurnar koma í þremur bragðtegundum.

Ari Edwald, stjórnarformaður Landbúnaðarklasans, sagði rökin fyrir útnefningunni þá að Ljótu kartöflurnar hafi fundið leið til þess að nýta þetta vannýtta hráefni sem aflagaðar eða of stórar kartöflur eru. Fyrir eljusemi að hafa ekki gefist upp á hráefninu sem hingað til hefur ekki verið talið hentugt til að gera kartöfluflögur þar sem íslenskar kartöflur innihalda mikla sterkju. Síðast en ekki síst fyrir frumleika í markaðssetningu og umbúðahönnun sem fer allt aðrar leiðir en sambærilegar vörur sem fyrir eru á markaðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert