Vinsælasta söruuppskrift landsins

Sætran-sörurnar eru löngu orðnar frægar.
Sætran-sörurnar eru löngu orðnar frægar. mbl.is/Hrefna Sætran

Það er engin önnur en Hrefna Sætran sem á heiðurinn af þessari uppskrift sem ber titilinn vinsælustu sörur landsins eða Sætran-sörur eins og við kjósum að kalla þær. Hrefna birti uppskriftina fyrst árið 2012 en síðan þá hefur henni verið deilt yfir 400 sinnum.

Sjálf segir Hrefna:

„Sörur eru örugglega bestu jólasmákökur sem til eru! Ég skellti mér í sörugerð síðustu helgi en ákvað að breyta aðeins og prufa nýtt. Það besta við sörurnar finnst mér smjörkremið. Mjúkt kaffibragðið sem bráðnar í munninum. Bara gott. Dökkt súkkulaði er oft dáltið beiskt og finnst mér það stela dálítið senunni þannig að ég ákvað að hjúpa sörurnar með rjómasúkkulaði. Svo setti ég rice crispies í staðinn fyrir muldar möndlur. Báðar breytingarnar fannst mér vera til góðs og eru sörurnar allavegna alveg að klárast heima hjá mér.“

Sætran-sörur

  • 3 eggjahvítur
  • 3 dl flórsykur
  • 4 dl rice crispies

Aðferð:

Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru stífar. Bætið flórsykri smátt og smátt saman við. Blandið rice crispies svo saman við með sleikju í lokin. Setjið með teskeið á smjörpappír (gott að smyrja hann aukalega með smjöri svo auðveldara sé að ná kökunum af) og bakið við 180 gráður í átta mínútur.

  • 6 eggjarauður
  • 300 g mjúkt smjör
  • 1 dl síróp
  • 2 msk kakóduft
  • 1 msk sterkt kaffi

Aðferð:

Þeytið rauðurnar í hrærivél. Hellið sírópinu í mjórri bunu út í hægt og rólega. Þeytið þar til rauðurnar eru dálítið stífar. Skerið smjörið í litla kubba og bætið rólega út í en þeytið áfram á fullu. Bætið svo kakói og kaffi út í í lokin og þeytið alveg í 10 mínútur áfram þar til kremið er létt. Smyrjið kreminu á kalda botnana, kælið sörurnar og dýfið svo toppnum ofan í brætt rjómasúkkulaði. 

Tvö góð ráð við bakstur. Takið smjörstykkið út kvöldið áður og geymið það á borði yfir nótt svo það sé allt jafn lint þegar þið bakið. Gott er að strjúka innan úr hrærivélarskálinni með smáediki til að hún verði alveg fitulaus og hrein. Þannig þeytast eggjahvíturnar betur og verða umfangsmeiri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert