Óskalisti matgæðingsins

Hvað á að gefa matgæðingnum sem veit fátt skemmtilegra en að nördast í eldhúsinu? Við tókum saman nokkrar vel valdar hugmyndir sem ættu að henta vel í jólapakka matgæðinga og fagurkera.

Tari-sneiðarinn er mikil snilld til að sneiða sveppi, tómata, mozzarellaost og ýmsa ávexti. Græjan er búin tenntum japönskum hnífum sem smjúga í gegn og skapa þráðbeinar 5 mm sneiðar. Tari fer vel í hendi, hann læsist í lokaðri stöðu svo að hann tekur lítið pláss í skúffu og blöðin mega fara í uppþvottavélina eftir notkun.
Kokka - uppselt

 

Nýju litirnir í Bitz-stellinu eru ákaflega fallegir og til þess fallnir að gleðja fagurkera. Það er líka skemmtilegt að blanda litunum saman en hægt er að kaupa kassa með mismunandi lituðum skálum.
Bast, Kringlunni

 

Pastavél sem kemur með Ítalíu alla leið inn í eldhús. Allavega vott af henni. Gaman er að prófa sig áfram með mismunandi uppskriftir og leyfa börnunum að vera með. Vélin er í raun stórkostleg því hana má einnig nota til að fletja út tacokökur eða deig í litlar pítsur.
Rafland. 29.900 krónur



Lodge-pottajárnspönnurnar eru með því vinsælla í verslunum um þessar mundir. Pönnurnar eru úr steypujárni og þær má setja í ofn.
Kokka, 3.600-21.900



Mjólkurfreyðari mun breyta morgunbollanum þínum í tóma hamingju. Það sem er svo sniðugt við þessa elsku er að hún má fara í uppþvottavélina og hægt er að velja um hversu mikla froðu fólk vill.
Nespresso, Kringlunni. 14.900 krónur.



Matreiðslunámskeið sem uppfyllir alla drauma. Við getum svo sannarlega mælt með matreiðslunámskeiðunum hjá Salt-eldhúsi. Hægt er að velja um ýmis námskeið svo sem sósugerð, hina fullkomnu steik, indverska matargerð o.fl. Þú velur upphæð og fallegur saltstaukur fylgir með.
salteldhus.is

 

Sous vide-bókin. Það er fátt meira spennandi en að hægelda mat í poka eða það finnst að minnsta kosti áhugamönnum um sous vide-eldamennsku og þeim fer fjölgandi. Bókin er sannkölluð biblía matgæðingsins með ítarlegum útskýringum og mjög vísindalegum útfærslum.
Fæst í öllum betri bókaverslunum.



Aida Raw-stell í nude Svo undurfagurt á litinn að hörðustu tréhjörtu taka engu að síður aukaslag. Án efa liturinn sem vantaði og mun ljá borðhaldinu ákveðinn glæsileika sem erfitt er að fanga.
Húsgagnahöllin. 990-7.990 krónur

 

Alvörusvuntur. Góð svunta skiptir máli og hér er að finna fjórar mismunandi útfærslur sem eru í senn sérlega töff og endingargóðar. Leðursvuntan er í uppáhaldi en hinar standa vissulega fyrir sínu.
Húsgagnahöllin. 11.990-21.990 krónur



Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert