Hollt og gott að hætti Þorbjargar

Vegan Ris a la mande bragðast guðdómlega.
Vegan Ris a la mande bragðast guðdómlega.

Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur, næringaþerapisti og eigandi Yogafood býður upp á hollari uppskriftir af jólamat. 

Ris a la mande: vegan, 4-5 skammtar

Hollt og gott, líka um jólin. Galdurinn er að sjóða brúnu hrísgrjónin tvisvar og í seinna skiptið í kókosmjólk. Berið ris a la mande fram með kirsuberjasósu lagaðri úr niðursoðnum lífrænum kirsuberjum sem fást meðal annars í Heilsuhúsinu. Einnig er möguleiki á að panta bæði Ris a la mande og sósu í Yogafood.

4 dl stutt brún hrísgrjón

10 dl vatn

1 l kókosmjólk t.d. frá Rude Health

½ tsk. vanilluduft eða fræin úr einni vanillustöng og sjóða börkinn með

½ tsk. sjávarsalt/flögur

hnífsoddur svartur pipar

4-5 msk. xylitol, milt hunang eða 5-7 dropar

vanillustevía

200 g möndluflögur

2 dósir kókosmjólk (geyma í ísskáp) sem gefur ca 4 dl kókoshneturjóma (efsta þykka kremið í dósinni). Afganginn má t.d. nota í þeyting. EKKI kaupa „light“ eða fituskerta. Í staðinn fyrir kókosrjóma má nota Oatly-hafrarjóma.

Kirsuberjasósa

  • 500 g niðursoðin kirsuber í krukku
  • 1 dl appelsínusafi
  • 1 msk. örvarrót eða maísmjöl og smávatn að hræra því í
  • vanillustevía eða annað sætuefni.

Skolið grjónin vel og vandlega í volgu vatni og sjóðið þau síðan í potti með loki í 10 dl af vatni í 40 mín. Þegar suðan kemur upp lækkið hitann undir pottinum og passið að ekki brenni við.

Þegar grjónin eru soðin er kókosmjólkinni bætt í grjónapottinn ásamt vanillu, vanilluberki, pipar og salti og suðan látin koma upp enn einu sinni. Lækkið hitann og leyfið grjónagrautnum að krauma með loki á þar til hrísgrjónin hafa sogið í sig alla kókosmjólkina. Bragðbætið með því sætuefni sem þið kjósið að nota. Blandið möndluflögunum í grautinn og kælið hann svo. Þegar grauturinn er orðinn kaldur blandið þá kókosrjóma eða hafrarjóma vel en samt varlega saman við grautinn. Hann á að vera léttur en ekki klístraður og þykkur.

Grauturinn er borinn fram í fallegri skál og athuga að fela góða afhýdda möndlu í einni skálinni. Muna svo að vera tilbúinn með möndlugjöf!

Kirsuberjasósa: Hita kirsuberin í eigin safa í potti ásamt appelsínusafanum. Bragðið og sætið ef þarf með smá stevíu eða því sem þið viljið nota. Þykkið sósuna með maísmjöli aða örvarrót á meðan þið hrærið varlega í pottinum. Varlega því við viljum ekki skemma og merja berin. Og passa að sósan verði ekki of þykk heldur! Margt að vara sig á hér! Sósan er borin fram heit eða köld með ris a la mande.

Rauðkálssalat með appelsínum.
Rauðkálssalat með appelsínum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jólalegt rauðkálssalat með appelsínum og apríkósum (vegan og án viðbætts sykurs)

Rauðkál verður maður af hafa á jólunum. Það er bara þannig. Hérna nota ég það í hráu maríneruðu salati sem er þrumugott meðlæti með alls konar mat, hvort sem er reyktu kjöti, lambakjöti eða hnetusteik. Appelsínusafinn og eplaedikið mýkja rauðkálið og því engin ástæða til að sjóða það. Geymslutíminn er næstum ein vika í lokuðu íláti í kæli.

  • 1 stórt rauðkálshöfuð (íslenskt) sneitt mjög þunnt og fínt í matvinnsluvél
  • Fínrifinn börkur af einni lífrænni appelsínu og safinn úr tveimur
  • 20 apríkósur (þessar brúnu lífrænu, EKKI þessar fölu) skornar í þunnar sneiðar
  • 5 g fersk engiferrót, fínhökkuð eða rifin
  • 2 msk. eplaedik
  • ½ tsk. vanilluduft eða skafa innan úr ¼ vanillustöng
  • 1 tsk. kanilduft
  • ¼ tsk. allrahandaduft
  • ¼ tsk. negulduft
  • ½ tsk. kardimommuduft
  • ½ tsk. flögusalt
  • 2 dropar stevía eða ½ msk. hunang
  • hnífsoddur nýmalaður svartur pipar

Blandið öllu saman, bragðið og metið hvort vantar meiri sætu eða salt. Setjið í skál með loki inn í ísskáp í að minnsta kosti 3 klst. áður en borið er fram. Takið út hálftíma áður svo það sé ekki ískalt.

Vegan sæt kartöflumús: 

fyrir 5-6 sem meðlæti

Brúnaðar kartöflur eru góðar, því er ekki að neita. En óneitanlega mikill sykur og sterkja í einni lotu. Það er hægt að hafa kartöflurnar sætar án sykurs og nota sætar kartöflur í staðinn fyrir karamelluna. Sætar kartöflur er einfaldlega hægt að skræla, skera í báta og baka í 180° heitum ofni í 30 mín. með smá olíu og rósmarínkryddi og máið er leyst. Annar möguleiki er að búa til rótarmús, næstum því eins og við gerum í Yogafood. Svaka góð.

  • 1 kg sætar kartöflur, skrúbbaðar og skornar í grófa teninga
  • 2 hvítlauksrif, marin
  • 2-3 dl vatn
  • 5 dropar fiskisósa (má sleppa ef vegan og nota 1 tsk. tamari-sósu í staðinn)
  • ½ msk. ný timíanlauf
  • ¼ tsk. vanilluduft
  • ½ tsk. rifin múskathneta
  • ½ tsk. kanilduft
  • fínrifinn börkur og safi úr einni lífrænni appelsínu
  • 1-3 msk. extra jómfrúarólífuolía eða smjörklípa
  • 1 tsk. sjávarsalt
  • nýmalaður pipar

Setjið kartöflur, hvítlauk, vatn, fiskisósu, timían, vanillu, múskat og kanil í pott og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið krauma þar til kartöflurnar eru alveg komnar í mauk. Það tekur 20 til 30 mín. Munið að hræra svo að ekki brenni við. Ef til vill þarf meira vatn. Maukið kartöflurnar með sleifinni og hrærið vel. Bætið appelsínusafa og berki við og hrærið áfram. Það er hægt að nota töfrasprota til að létta verkið. Að lokum er bragðbætt með ólífuolíu, salti og pipar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert