Við rákum augun í skemmtilegan hátíðarrétt í Krónunni á dögunum sem var kirfilega merktur Friðriki V og eins og sönnum matgæðingi sæmir þurftum við að komast að því hvað hér var á seyði.
Það var kjötmeistari Krónunnar, Ólafur Júlíusson, sem leiddi okkur í allan sannleika um málið en hér eru á ferðinni úrbeinuð lambalæri sem búið er að fylla með alls kyns góðgæti en það var meistari Friðrik V sem á heiðurinn af fyllingunni.
Þetta er samstarf sem við hófum í fyrra með Friðriki og Norðlenska. Þá fengum við Friðrik til að útfæra fyrir okkur fyllingu sem mæltist svona vel fyrir að það var ekki annað hægt en að endurtaka leikinn,“ segir Ólafur og bætir við að í boði séu tvær fyllingar; annars vegar camembert og trönuber og síðan villisveppa.
Aðspurður hvor sé vinsælli segir hann það standa hnífjafnt. Ég var einmitt að athuga það áðan og þetta er alveg jafnt. Svo erum við líka með fylltan lambahrygg sem er með osti og bláberjum sem hefur einnig verið gríðarlega vinsæll.
Ólafur segir ljóst á vinsældunum að fólk sé ánægt með þessa nýbreytni Krónunnar. „Svo er þetta svo hagkvæmt. Kjötið er líka óreykt og ferskt sem er ágætistilbreyting. En umfram allt er þetta einfalt. Það þarf bara að henda kjötinu inn í ofninn. Umstangið er ekkert og bragðgæðin eru 100%.“