Skothed nautalund Wellington að hætti Jóns

Munið að kjöthitamælir kemur að góðum notum við að ná …
Munið að kjöthitamælir kemur að góðum notum við að ná lundinni 100%! mbl.is/

Hér er komin uppskrift að einum vinsælasta áramótarétti landsins. Nautalund Wellington að hætti Jóns Arnar, matreiðslumanns hjá Kjötkompaníi.

Nautalund Wellington

Hráefni:

1,4 kg nautalund
smjördeig
olía (til steikingar)
1.000 g sveppir, saxaðir
3 dl saxaður skalottlaukur
250 ml púrtvín
sjávarsalt og nýmalaður pipar
2 egg (til penslunar)
3 msk. ólívuolía
1 stk. hvítlauksgeiri
6 sneiðar skinka
einn stilkur ferskt timjan
½ til 1 dl ljóst rasp 

Aðferð:

Byrjið á því að steikja sveppina á pönnu í 3-4 minútur, setjið þá laukinn og hvítlaukinn saman við og steikið áfram í nokkrar mínútur, hellið þá púrtvíni á pönnuna og sjóðið vel niður, að lokum bætið raspi saman við og kryddið til, kælið síðan.

Steikið nautalundina vel á öllum hliðum, kryddið með sjávarsalti og nýmöluðum pipar og kælið.

Takið smjördeigið og fletjið það út í hæfilega þykkt, smyrjið sveppamauki á miðju deigsins og leggið lundina ofan á, setjið einnig sveppamauk ofan á lundina og pakkið síðan lundinni inn í deigið, penslið samskeyti með eggjum.

Penslið allt deigið með eggjum og bakið í ofni við 190–200 °c í 20–30 mín. eða með kjarnhitamæli í 52° í kjarna. Látið síðan standa í ca 10 mínútur áður en skorið er.

Fallegt er að nota piparkökumót til að skera út munstur …
Fallegt er að nota piparkökumót til að skera út munstur úr smjördeiginu og skreyta lundina. mbl.is/
Jón og félagar standa vaktina í nýrri verslun Kjötkompaní út …
Jón og félagar standa vaktina í nýrri verslun Kjötkompaní út á Granda. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert