Virkilega góð Baby Ruth-terta

Ef þú elskar súkkulaði og salthnetur þá ættir þú að …
Ef þú elskar súkkulaði og salthnetur þá ættir þú að baka þessa köku fyrir jólin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hver er ekki sjúkur í salthnetur, ritzkex og allt það! Hægt er að fara nokkrar leiðir með þessa köku. Það er vissulega hægt að setja deigið í tvö hefðbundin kökuform en það má líka setja hana í skúffu, skera í bita og frysta líkt og fólk gerir með sörurnar. Hún er ferlega góð með ístertu ef þú ætlar að gera alveg sérdeilis vel við þig.

Hátíðleg Baby Ruth-terta

Botn

  • 8 eggjahvítur
  • 8 dl púðursykur
  • 1 msk. lyftiduft
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 5 dl salthnetur
  • 40 ritzkex

Stífþeytið saman eggjahvítur og sykur. Þegar blandan er orðin létt og áferðarfalleg er lyftidufti, vanilludropum, salthnetum og ritzkexi bætt út í og þeytt þar til deigið er orðin fallegt.

Setjið deigið í tvö bökunarform með bökunarpappír. Bakið botnana í 20 mínútur við 180 gráður.

Krem

  • 8 eggjarauður
  • 150 g flórsykur
  • 100 g smjör
  • 200 g suðusúkkulaði

Setjið súkkulaði og smjör í pott og bræðið saman. Þeytið eggjarauðurnar vel og vandlega og bætið flórsykrinum út í. Þegar súkkulaðibráðin er tilbúin og búin að kólna örlítið er henni bætt út í eggja- og flórsykurshræruna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert