Salsa sem bætir lífið

Fallegt og bragðgott salsa í ananasskál.
Fallegt og bragðgott salsa í ananasskál. mbl.is/Albert Eiríksson

Þetta ananassalsa er úr smiðju Alberts Eiríkssonar matarbloggara og það er vel til þess fallið að slá í gegn með í næsta boði. Við elskum hvernig ananasinn er notaður enda er fátt fallegra eða meira móðins en einmitt ananas.

Ananassalsa – litfagurt og hollt salat

Það tekur ekki nema fimmtán mínútur að útbúa þetta holla salat. Sætt ananasbragðið passar vel með kóríander og chili. Salatið hentar með kjúklingaréttum, fiski eða sér með stökkum flögum. Ef þið viljið hafa það sterkara þá er um að gera að saxa ferskt chili. Salatið er tilbúið um leið og búið er að blanda því saman og fylla ananasinn.

Ananassalsa – litfagurt og hollt salat

  • 1 heill ananas
  • 1 b söxuð paprika, helst rauð og appelsínugul
  • 1 b saxaðir tómatar
  • 1/3 b kóríander
  • 1/4 b saxaður vorlaukur eða rauðlaukur
  • 2-3 msk. sítrónusafi
  • smá chili
  • salt og pipar

Skerið ofan af ananasinum, síðan hann í tvennt og takið innan úr honum. Hendið harða hlutanum í miðjunni og skerið hitt í bita og látið leka af þeim á sigti. Hvolfið ananasbátunum og látið leka úr þeim ef einhver safi er þar. Blandið saman í skál ananasbitum, papriku, tómötum, kóríander, vorlauk, sítrónusafa, chili, salti og pipar. Fyllið ananasbátana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert