Slippurinn poppar upp á Apótekinu

Gísli ásamt öflugu teymi Apóteksins.
Gísli ásamt öflugu teymi Apóteksins. mbl.is/Apótekið

Matreiðslumeistarinn Gísli Matthías Auðunsson verður í broddi fylkingar á veitingastaðnum Apótekinu dagana 24. – 28. janúar næstkomandi. Þá daga verður veitingahúsið Slippurinn í Vestmannaeyjum með svokallað Pop Up event og sérstakur sjö rétta matseðill að hætti Gísla á staðnum. Bergdís Örlygsdóttir, einn eigenda Apóteksins, segir uppátækið spennandi og að það sé um að gera að brjóta aðeins upp stemninguna fyrir gesti og starfsfólk staðarins á nýju ári. „Gísli er auðvitað mjög fær á sínu sviði þannig að við vitum vel að þetta verður frábær upplifun. Meðal þess sem má finna á Pop Up-seðlinum eru þaraflögur, leturhumar, lamb og skyr, þannig að það verður af mörgu að taka.“

Fram kemur í fréttatilkynningu að Pop Up eventið sé ein af mörgum skemmtilegum uppákomum sem starfsfólk Apóteksins stendur fyrir á nýju ári en hin vinsælu kokteilanámskeið staðarins eru aftur komin á fullt. „Þar sjá margverðlaunaðir kokteilabarþjónar okkar um að kenna áhugasömum nemendum að búa til ýmsa kokteila og að para þá með góðum mat. Kokteilar gera oft góðan mat og skemmtilega stemningu enn betri þannig að þessi námskeið hafa slegið í gegn hjá okkur og við höldum því áfram með þau,“ segir Bergdís.

Frekari upplýsingar um Pop Up-seðilinn og námskeiðin má finna inni á heimasíðu Apóteksins.

Gísli Matthías Auðunsson verður á Apótekinu næstu daga.
Gísli Matthías Auðunsson verður á Apótekinu næstu daga. mbl.is/Apótekið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert