McDonalds með eitursnjalla auglýsingu

Hjónin Chrissy Teigen og eiginmaður hennar, John Legend.
Hjónin Chrissy Teigen og eiginmaður hennar, John Legend. AFP

Við elskum þegar stórfyrirtæki bjóða upp á sniðuga markaðssetningu og ef við elskum eitthvað heitar en það þá er það Chrissy Teigen sem er ekki bara algjör snillingur heldur baneitraður húmoristi.

Hér gefur að líta auglýsingu frá McDonalds sem sýnir Chrissy á verðlaunaafhendingu í sínu fínasta pússi, kasólétta (eins og hún er), að drepast úr hungri. Það eru því góð ráð dýr og þá auðvitað bregður maður sér í bílalúguna á McDonalds og deilir með vinunum.

Vel heppnað eins og allt sem Chrissy gerir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert