Míní-pavlóvur með lakkrískeim

Ein pavlóva kemur varla að sök.
Ein pavlóva kemur varla að sök. mbl.is/Berglind Hreiðars/Gotteri.is

Öllum þeim sem eru í janúaraðhaldinu vil ég ráðleggja eindregið að lesa ekki lengra... en ef þú ert sælkeri af guðs náð þá má auðveldlega færa rök fyrir því að þar sem pavlóvurnar eru svo litlar þá komi varla að sök þótt maður narti í eina.

Það er meistari Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á þessa uppskrift skuldlaust og við leyfum ykkur að njóta.

Míní-pavlóvur með lakkrískeim

Pavlour

  • 6 eggjahvítur
  • 4 dl sykur
  • ½ msk. sítrónusafi
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 2 msk. Hockey Pulver

Aðferð:

  1. Þeytið eggjahvítur stutta stund og bætið sykrinum saman við smátt og smátt.
  2. Þegar topparnir halda sér og blandan orðin stífþeytt er sítrónusafa og Hockey Pulver blandað varlega saman við.
  3. Blandan er sett í stóran sprautupoka og notaður er stútur 1M frá Wilton (eða annar sambærilegur) til þess að sprauta pavlovunum á bökunarpappír á bökunarplötu. Fyrst er botninn þakinn og því næst tekinn annar hringur ofan á (í raun tvær hæðir).
  4. Síðan má búa til smá „holu“ í miðjuna til að nóg pláss sé fyrir rjómann.
  5. Stráið smá Hockey Pulver yfir hverja köku áður en hún fer í ofninn (magn er smekksatriði).
  6. Bakið við 110°C í 1 klst. og 10 mínútur, slökkvið þá á ofninum og leyfið pavlovunum að kólna með ofninum í að minnsta kosti klukkustund (þannig fellur marengsinn síður).

Rjómi og skraut

  • 400 ml rjómi
  • 2 msk. sykur
  • Hindber til skrauts
  • Lakrits FIKA með kaffe (um ½ dós)

Aðferð:

  1. Þeytið rjómann með sykrinum þar til hann er stífþeyttur.
  2. Setjið í sprautupoka og sprautið ríkulega af rjóma á hverja köku.
  3. Skreytið með hindberjum og lakrits FIKA með kaffe og „drisslið“ síðan lakkríssósu yfir allt (sjá uppskrift hér að neðan).

Lakkríssósa

  • 1 poki Nóa lakkrískúlur (150 gr.)
  • ¾ dl rjómi

Aðferð:

  1. Setjið kúlur og rjóma í pott og hitið á meðalháum hita þar til bráðið og hrærið vel í allan tímann.
  2. Leyfið að kólna stutta stund (við það þykkist sósan líka) og „drisslið“ síðan ríkulega af sósu yfir hverja pavlovu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert