Camenbert-snitta með sætri peru

Hver fær staðist svona góðgæti?
Hver fær staðist svona góðgæti? mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir/Gotteri.is

Þetta er ekkert sérlega flókið: Allt sem inniheldur Camembert-ost er gott! Camembert-snittur eru það því augljóslega líka og hvað þá ef þær eru paraðar saman með perum, klettasalati og ristuðum furuhnetum.

Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn af þessum snittum sem munu sannarlega slá í gegn við hvert tilefni.

Camenbert snitta með sætri peru

  • 1 stk. baguette-brauð
  • 1 ½ Camenbert-ostur
  • 1 ½ pera
  • Klettasalat (um ½ poki)
  • Ristaðar furuhnetur (um ½ poki)
  • Ólífuolía
  • Hvítlauksduft
  • Gróft salt
  • Sykur og smjör til að brúna perusneiðarnar

Aðferð:

  1. Skerið brauðið á ská í sneiðar, penslið með ólífuolíu, stráið hvítlauksdufti og grófu salti yfir. Ristið í um 3 mínútur í ofni við 200°C.
  2. Kælið brauðið aðeins og setjið klettasalat yfir hverja sneið.
  3. Skerið peruna í sneiðar sem passa brauðstærðinni ykkar (ekki of þykkar).
  4. Stráið sykri á pönnu, hitið þar til hann bráðnar og bætið þá smjörklípu saman við og lækkið hitann.
  5. Brúnið perusneiðarnar á báðum hliðum, þegar þið snúið er Camenbert-sneið lögð á hverja perusneið þar til osturinn fer aðeins að bráðna.
  6. Þá er peru-/Camenbert-sneiðin færð yfir á snittuna, ofan á klettasalatið.
  7. Ristuðum furuhnetum er að lokum stráð yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert