Bakaði skírnarköku fyrir lítinn vin sinn

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Berglind Hreiðars er ábyggilega með vinsælli bökurum á landinu og þykja kökurnar hennar með því flottara sem sést hefur.

Hún skírði dóttur sína í fyrra og var veislan algjörlega mögnuð svo að ekki sé meira sagt.

Ekki var fermingarveislan fyrir hina dóttur hennar síðri enda með mest lesu fréttum á Matarvefnum í fyrra.

Á dögunum tók Berglind sig til að bakaði þessa fallegu skírnarköku fyrir lítinn vin sinn og var litavalið í takt við litaþemað í veislunni.

Sérlega falleg kaka og fyrir þá sem vilja leika þetta eftir er hægt að nálgast leiðbeiningar frá Berglindi hér að neðan.

Eins er hún með ítarlegar leiðbeiningar hér.

Kakan er tveggja hæða og hér gefur að líta rósamynstur, …
Kakan er tveggja hæða og hér gefur að líta rósamynstur, skelar og marmaraáferð. mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
Falleg smáatriði og vandað handbragð.
Falleg smáatriði og vandað handbragð. mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert