Bandaríska leikkonan Mandy Moore tók eldhúsið sitt í gegn á dögunum, sem er almennt ekki í frásögur færandi en þar sem hún birti myndir af því getum við ekki annað en skoðað útkomuna og tekið hana út.
Í sem skemmtustu máli má segja að útkoman sé algjört æði. Að sjálfsögðu er það hámóðins og fær marmarinn notið sín til jafns við stóra og volduga eldavélina. Það sem athygli vekur er að stíllinn er mjög svo nýtískulegur en ekki hefðbundinn amerískur eins og oft virðist raunin.
Það sem er einna mest heillandi við eldhúsið er hins vegar lofthæðin og þakglugginn. Með því að setja þakglugga er gert eins mikið og kostur er úr lofthæðinni og birtan í eldhúsinu verður engu lík.
Svo verður að viðurkennast að eldhúsið er mjög mikið í anda þeirra eldhúsa sem Matarvefurinn hefur verið að birta myndir af undanfarna mánuði og því ljóst að litapallettan fellur alveg í kramið.
Virkilega vel heppnað í alla staði!
A post shared by Habitually Chic® (@habituallychic) on Jan 19, 2018 at 4:10pm PST
A post shared by C How Creative (@howvisual) on Jan 24, 2018 at 12:29pm PST