Rétturinn sem börnin elska!

Hinn fullkomni fjölskylduréttur.
Hinn fullkomni fjölskylduréttur. mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

„Það hrósuðu allir matnum,“ sagði Berglind Guðmundsdóttir, matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt, um þennan dásemdarrétt sem virðist falla í kramið hjá öllum aldurshópum. Og meira biðjum við ekki um.

Taco pasta
Fyrir 4-6

  • 1-2 msk. ólífuolía
  • 1 laukur, saxaður
  • 2-3 hvítlauksrif, söxuð
  • 500 g nautahakk
  • 1 poki (4-5 msk.) tacokrydd
  • 1 dós (400 g) tómatar, saxaðir eða maukaðir
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 7 dl vatn
  • 400 g farfalle pasta
  • rifinn mozzarella
  • nachos

Aðferð:

  1. Steikið lauk og hvítlauk í olíu í stórum potti. Bætið nautahakkinu saman við og steikið.
  2. Setjið tacokryddið saman við ásamt tómötum, tómatpúrru og vatni. Kryddið með salti og pipar.
  3. Setjið lok á pottinn og látið malla við vægan hita í 20 mínútur.
  4. Bætið pastanu út í og sjóðið þar til pastað er tilbúið. Bætið við vatni ef þörf er á.
  5. Setjið í skálar og toppið með rifnum mozzarellaosti og muldu nachos.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert