Þessa vefsíðu verða allir matarunnendur að þekkja

Indversk matargerð er vinsæl á síðunni.
Indversk matargerð er vinsæl á síðunni. mbl.is/Travelling spoon

The Travelling spoon er vefsíða sem ferðalangar og matarunnendur verða að þekkja. The Forbes kallar síðuna næstu kynslóð af ferðamennsku og lofar hana í hástert. 

Síðan er í raun leitarvél sem flokkar gestgjafa eftir staðsetningu og matarframboði. Gestgjafarnir sérhæfa sig í að taka á móti ferðamönnum og elda fyrir þá. Hægt er að velja um sýnikennslu, markaðsferð eða eingöngu málsverð. Valmöguleikarnir eru töluverðir og getur fólk valið að mæta í hádegisverð eða kvöldverð, fá vínglas með matnum, hvernig mat það vill, jafnvel karaktereinkenni og aldur gestgjafanna. 

Því geta ferðalangar til dæmis í Japan eða á Ítalíu bókað sig í kvöldverð hjá heimamönnum og fengið að kynnast landinu, staðarháttum og matarmenningunni beint frá fólkinu sem þekkir hana.

Vefsíðan nýtur mikilla vinsælda um allan heim.
Vefsíðan nýtur mikilla vinsælda um allan heim. mbl.is/skjáskot Travelling spoon

Verðið er mjög misjafnt en hægt er að skoða meðmæli og myndir af húsakynnum gestgjafa og myndir af matnum sem boðið er upp á. Á Íslandi eru þrír gestgjafar skráðir en hægt er að sækja um að verða gestgjafi á síðunni. Þá er sendur sendiherra frá síðunni heim til umsækjenda og tekur sendiherrann út matinn og umhverfið áður en gestgjafar geta opinberlega tekið á móti fólki. 

Virkilega sniðug síða sem vert er að skoða og jafnvel bóka sig í kvöldmat næst þegar ferðast er.

Þessi réttur er meðal þess sem boðið er upp á …
Þessi réttur er meðal þess sem boðið er upp á hjá ítölsku hjónunum Massimo og Fredricu. mbl.is/Travelling spoon
Massimo og Frederica búa í Róm.
Massimo og Frederica búa í Róm. mbl.is/Travelling spoon
Grísk hjón sem skráð eru á síðunni og njóta mikilla …
Grísk hjón sem skráð eru á síðunni og njóta mikilla vinsælda. mbl.is/Travelling spoon
Menn taka þetta mislangt. Þessi herramaður keypti sér kokkabúning.
Menn taka þetta mislangt. Þessi herramaður keypti sér kokkabúning. mbl.is/Travelling spoon
Japanskur hádegisverður. Hjónin sem bjóða upp á þennan mat eru …
Japanskur hádegisverður. Hjónin sem bjóða upp á þennan mat eru staðsett nálægt flugvelli og benda á það sem kost að koma beint úr flugi í mat. mbl.is/Travelling spoon
Ítölsk terta og eftirréttavín.
Ítölsk terta og eftirréttavín. mbl.is/Travelling spoon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert