Bakaði afmælisköku sem var eftirmynd dætranna

Kakan af stúlkunum....
Kakan af stúlkunum.... mbl.is/Lara Mason

Fólk leggur mismikið á sig fyrir veislur barna sinna en þetta er algjörlega með því brjálaðasta sem við höfum heyrt. Bresk kona, Lara Mason, fagnað eins árs afmæli tvíburadætra sinna með því að baka kökur sem eru nokkuð nákvæmar eftirmyndir þeirra. Svo raunverulegar eru kökurnar að engu líkara er en að fjögur börn séu á sumum myndunum þegar í reynd er einungis um að ræða tvær kökur og tvær alvöru stúlkur.

Tvíburastúlkurnar ásamt kökustelpunum.
Tvíburastúlkurnar ásamt kökustelpunum. mbl.is/Lara Mason

Mason var eðlilega ánægð með verkið sem tók hana fimm daga. Hún segist stöðugt vera að reyna að bæta sig í bakstrinum en þess má geta að hún er ekki atvinnubakari heldur er hér um hreinræktað áhugamál að ræða.

Engum sögum fer af áætlunum fyrir tveggja ára afmæli dætranna en það verður ábyggilega eitthvað rosalegt...

Hér sjást raunverulegu stúlkurnar gæða sér á kökunum.
Hér sjást raunverulegu stúlkurnar gæða sér á kökunum. mbl.is/Lara Mason

Hér má sjá myndir úr ótrúlega fallegri veislu sem Þórunn Högna hélt fyrir dóttur sína:

Berglind Hreiðars sló öll met með þessari skírnarveislu:

Alvöru stelpurnar!
Alvöru stelpurnar! mbl.is/Lara Mason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert