Spænskt saltfiskpartí á Tapasbarnum

mbl.is/Íslandsstofa

Veitingahúsið Tapasbarinn fagnar tilveru saltfisks dagana 21. – 28. febrúar næstkomandi. Boðið verður upp á rétti frá þremur matreiðslumeisturum frá Barcelona, þeim Jordi Asensio, Francisco Diago Curto og Guillem Rofes. Réttirnir þeirra verða á sérstökum matseðli Tapasbarsins á hátíðinni, ásamt því sem tveir saltfiskréttir staðarins verða einnig á seðlinum og kostar hver og einn 1.790 kr.

„Þessir meistarar verða á landinu í nokkra daga og kenna okkar fólki handtökin þegar kemur að því að vinna réttina þeirra. Við hlökkum til hátíðarinnar því það er alltaf skemmtilegt að taka á móti erlendum gestum og bjóða viðskiptavinum upp á eitthvað öðruvísi. Saltfiskréttirnir okkar eru mjög vinsælir svo það verður áhugavert að sjá hvernig tekið verður í rétti erlendu meistaranna á hátíðinni,“ segir Bento Guerreiro, einn eigenda Tapasbarsins.

Fyrir áramót hélt Íslandsstofa keppnina Islandia al Plat úti í Barcelona í tengslum við kynningarstarf þar í landi á íslenskum saltfiski. Matreiðslumeistararnir sem koma hingað til lands voru í fyrstu þremur sætunum í þeirri keppni og réttirnir sem verða á hátíðinni því sigurréttirnir, að því að fram kemur í fréttatilkynningu.

„Dómnefndin var skipuð blaðamönnum sem sérhæfa sig í umfjöllun um matreiðslu og veitingastaði, matreiðslumönnum og fulltrúa frá Bacalao de Islandia. Keppnin heppnaðist vel og kynningarstarfið einnig en saltfiskur er vinsælt hráefni á Spáni líkt og hér á landi. Saltfiskhátíðin og samstarfið við Tapasbarinn er því kærkomin viðbót við þetta kynningarstarf og eiga hátíðargestir von á virkilega góðum réttum,“ segir Kristinn Björnsson, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu.

Frekari upplýsingar um hátíðina má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert