Staðreynd um Le Creuset sem fæstir vita

Le Creuset-pottarnir eru ákaflega vinsælir víða um heim.
Le Creuset-pottarnir eru ákaflega vinsælir víða um heim.

Le Creuset-eldhúsvörurnar þykja afskaplega fínar og kosta líka skildinginn. Margir leggja metnað sinn í að safna vörum frá fyrirtækinu og alla jafna þykir það ágætisfjárfesting.

Það er þó ein staðreynd um Le Creuset sem fæstir vita af og það er að vörurnar eru með lífstíðarábyrgð. Það þýðir að ef að skarð kemur í pottinn þinn eða hann skemmist að einhverju leyti þá færðu nýjan.

Þó fylgir sá böggull skammrifi að fyrirtækið verður að úrskurða að ekki hafi verið um viljaverk að ræða og ekki er hægt að skemma gamla pottinn í þeirri von að fá nýjan pott í nýjum lit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert