Bandaríska leikkonan Mandy Moore hefur verið að taka heimili sitt í gegn undanfarna mánuði og við sýndum ykkur myndir á dögunum.
Nú var komið að búrskápnum og fékk hún snillingana í The Home Edit til að taka búrið í gegn og hér má sjá myndir af herlegheitunum. Það eru sjálfsagt fæstir sem geta státað af slíku búri en víða erlendis er algengt að vera með stóra búrskápa eða búr eins og það er réttnefnt.
Við fyllumst þó nokkurri öfund enda er þetta alveg til að státa sig af enda var Moore afskaplega ánægð eins og sjá má á myndböndunum.
A post shared by THE HOME EDIT ® (@thehomeedit) on Jan 31, 2018 at 7:22pm PST
A post shared by THE HOME EDIT ® (@thehomeedit) on Jan 27, 2018 at 12:14pm PST