Taco lasagnia-baka

Fljótleg útgáfa sem flestir falla fyrir. Það má vel bæta …
Fljótleg útgáfa sem flestir falla fyrir. Það má vel bæta við maískorni í hakkið. Mbl.is/TM

Ég hreinlega elska taco-bökur en hef ekki alltaf tíman eða nennuna í að útbúa bökuskel. Því hef ég komist upp á lagið með að nota vefjur í sérlega tacolasagina böku sem svíkur engan!

Heilnæm og hugguleg máltíð.
Heilnæm og hugguleg máltíð. Mbl.is/TM

Taco lasagnia-baka 

400 g nautahakk 
1 bréf taco krydd 
1 laukur 
3 hvítlauksrif 
Olía
1 dós hakkaðir tómatar 
1 msk tómatpúrra 
100 g sýrður rjómi 
200 g kotasæla 
200 g rifinn ostur 
kóríander 
Heilhveiti eða súrdeigs tortilla kökur 
1 tómatur 

Meðlæti:
2 stk avókadó 
100 g sýrður rjómi 
1 hvítlauksrif
salt
pipar
límóna 
spínat 

Steikið laukinn og hvítlaukinn upp úr 1 msk af olíu. 
Þegar laukurinn er tekin að mýkjast er hakkinu bætt saman við og tacokryddinu. Steikið í 10 mínútur á miðlungshita. Þá fara hökkuðu tómatarnir og tómatpúrran saman við. Látið malla í aðrar 10 mínútur. 

Þá er 100 g af rifnum osti, sýrðum rjóma og kotasælu hrært saman í skál. 

Setjið smá olífuolíu í botninn á eldföstu móti og setjið eina tortilla köku í botninn.Setjið kjötfyllingu á, og lokið með annarri köku. Þá kemur hvíta fyllingin. Svo aftur kjöt, tortillakaka og svo hvítafyllingin ofan á. Skerið niður tómat og raðið ofan á hvítufyllinguna og stráið restinni af rifna ostinum ofan á tómatana. 

Bakið við 180 gráður í 20 mínútur eða þar til allt er orðið vel heitt í guaqamole

gegn og osturinn tekinn að gyllast.

Guacamole 

100 ml sýrður rjómi
2 avokadó eða 1 stórt 
1/2 Límóna, safinn 
1 hvítlauksrif marið 
salt 
pipar

Setjið innihaldsefnin í skál og maukið með töfrasprota.

Berið fram með fersku spínati.

Guacamole er dásamlegt meðlæti.
Guacamole er dásamlegt meðlæti. Mbl.is /TM
Það er ekkert að þessu!
Það er ekkert að þessu! mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert