BBQ-kjúklingur Lindu – aðeins 4 hráefni

Steikar kartöflur henta vel með kjúklingnum.
Steikar kartöflur henta vel með kjúklingnum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Matgæðingurinn, grunnskólakennarinn og gourmet-unnandinn Linda Björk Ingimarsdóttir, bloggari á Eat-RVK, reif upp svuntuna og eldaði handa okkur guðdómlegan kjúklingarétt. Ekki klikka á að hafa sólar-salsað hennar með. 

BBQ- og sesamkjúklingur Lindu 

„Þetta er geggjaður kjúklingaréttur með aðeins fjórum hráefnum, einfaldara verður það ekki og hver elskar ekki að elda einfaldan en bragðgóðan mat sem hittir beint í mark?“ segir Linda yfir pottunum. „Þessi réttur er í uppáhaldi hjá öllum í fjölskyldunni sem er algjört met því smekkur manna er misjafn á mínu heimili. Það tekur einnig engan tíma að gera hann svo hann passar fyrir heimili þar sem mikið er að gera en einnig matarboð. Það sem er sérstaklega þægilegt er að sósan sem fylgir réttinum er einnig marineringin.“

4-6 kjúklingabringur skornar í tvennt eða lundir
1 bolli góð bbq-sósa
½ bolli hlynsíróp
½ bolli ristuð sesamfræ

Hitið ofninn í 180 gráður

Ristið sesamfræin á pönnu og setjið til hliðar

Hellið bbq-sósu og hlynsírópi  í skál og blandið vel saman, bætið svo 2 msk. af sesamfræjum saman við og hrærið vel saman.

Leggið bringurnar í eldfast mót og hellið um ½ af sósunni yfir og penslið kjúllan vel með henni.

Sett í ofn og eldað í 25 mín. eða þar til kjúllinn er tilbúinn.

Þegar kjúllinn er tibúinn setjið þið afganginn af sesamfræjunum og notið afganginn af sósunni með réttinum, gott er að borða hann með nánast öllu meðlæti svo sem hrísgrjónum, salati, salsa eða kartöflum.

Girnilegt – ferska salsað vegur vel upp á móti bragðmikilli …
Girnilegt – ferska salsað vegur vel upp á móti bragðmikilli BBQ-sósunni. mbl.is/Kristinn Magnússon
Matarvefurinn mætir reglulega í eldhúsið hjá Lindu og kíkir í …
Matarvefurinn mætir reglulega í eldhúsið hjá Lindu og kíkir í pottana. Tobbu Marinós á Matarvef mbl.is og Lindu Björk leiðist ekki að elda saman. Íris Ann Sigurðardóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert