Mangó- og ananas-salsa sem hressir málsverðinn við

Þetta salat minnir á batnandi tíð með blóm í haga.
Þetta salat minnir á batnandi tíð með blóm í haga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hér kemur brakandi fersk uppskrift að sumri í skál frá Lindu Björk Ingimarsdóttur, matgæðingi Matarvefjarins.

Mangó- og ananas-salsa

Nú þegar loks er farið að sjást í sól er þetta salsa fullkomið enda er það eins og sól í skál, ávaxtaríkt, ferskt og gott. Það er einfallt að gera og passar með nánast öllu og jafnvel eitt og sér. Það passar vel með kjúklingnum.

2  söxuð mangó
1 bolli saxaður ananas
1/3 bolli söxuð rauð paprika
1/4 bolli saxaður vorlaukur
1/4 bolli saxað kóríander
Safi úr ½ appelsínu
Safi úr ½  lime
1 tsk. rauður chili, saxaður, fræhreinsaður ef þið viljið ekki mikinn „sólar“-hita 

Allt saxað og sett í skál, látið standa á borði í 30 mínútur áður en þess á að njóta.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert