Innsetning á rib-eye víða um heim

Steinþór hefur sérstakt dálæti á Rib-eye steikum.
Steinþór hefur sérstakt dálæti á Rib-eye steikum. mbl.is/SG

Í einfaldleika sínum snýst lífið um næringu, vinnu og hvíld. Að margra mati er rib-eye steik einn besti biti nautakjöts. Eftir óvísindalega könnun í nokkrum löndum er blaðamaður á því.

Þráinn Kristjánsson, þáverandi veitingamaður í Winnipeg í Kanada, kom blaðamanni á rib-eye bragðið fyrir margt löngu og það hefur ekki farið úr munni síðan. Curtis Olafson, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum, á stóran þátt í því, en hann ræktar naut af Simmental-kyni, sem gefur af sér heimsins besta rib-eye og hefur haldið því að blaðamanni við hvert mögulegt tækifæri.

Rib-eye er víða gott í Vesturheimi. Alltof víða! Uppáhaldsstaðurinn er Smith & Wollensky í Boston, en þangað fer maður samt ekki fyrr en búið er að safna í sjóðinn. Manny's og Murray's í Minneapolis kunna líka sitt fag rétt eins og 529 Wellington í Winnipeg og svo er um marga, marga fleiri.

Á liðnu ári ákvað sælkerinn að borða aðeins minna en meðalsteikta rib-eye steik (medium rare) sem víðast í Evrópu. Svona innsetning á mat á menningarmáli. Þeim peningum var vel varið og enn sér þess merki þrátt fyrir hreyfingu í bak og fyrir.

Incognito á Möltu

Við Miðjarðarhafið, eins og annars staðar í hinum vestræna heimi, má nánast finna hvað sem er. Almennt má ganga út frá því að þar sem eru ferðamenn þar er matur.

Malta er sem safn smábæja, hver með sínu sniði. Lífið og fjörið er í St. Julian's, Paceville og Sliema og þar eru flestir matstaðirnir, en góðar matarholur leynast víða. Einn gimsteinninn er fjölskyldustaðurinn Incognito á mörkum Qawra og Buggiba við norðvesturströndina. Rib-eye steikin þar er ein sú besta sem blaðamaður hefur fengið á Möltu í fjórðung aldar og í raun var hún svo góð að farið var kvöldið eftir til þess að vera alveg viss.

Staðurinn er ekki sá fínasti, lítið lagt upp úr umhverfinu, en hjónin, sem eiga og reka staðinn, eru svo almennileg og vinaleg að umhverfið breytir engu. Ástæðulaust þótti að fylla diskinn af meðlæti heldur var kjötið látið njóta sín með góðri sósu, sem reyndar var óþarfi enda var henni sleppt seinna kvöldið. Lága verðið spillir ekki fyrir.

Floras í Kaupmannahöfn

Kóngsins Köbenhavn skartar af mörgum góðum rib-eye stöðum en eins og víða eru þar líka margar túristagildrur sem ber að varast.

Það er góð regla að kynna sér staði sem heimamenn sækja. Hóteleigandi benti matgæðingnum sem þetta skrifar á að margir veitingahúsamenn hugsuðu bara um líðandi stundu, ferðamenn kæmu bara einu sinni og því skipti ekki máli hvað væri boðið upp á. Aðrir legðu áherslu á stöðugleikann, heimamenn, og þeim mætti alltaf treysta. Einn þessara gömlu og grónu staða væri Floras á Vesterbrogade 16, rétt hjá aðaljárnbrautastöðinni (Hovedbanegarden), og Madklubben klikkaði ekki.

Blaðamaður hefur nokkrum sinnum borðað á þessum stöðum og rib-eye steikin á Floras 2017 brást ekki frekar en fyrri daginn. Huggulegur staður og því kemur á óvart að aldrei hefur verið margmenni í heimsóknunum undanfarin ár. Sjálfsagt bara tilviljun.

Bowery í Amsterdam

Margir góðir steikarstaðir eru í miðbæ Amsterdam í Hollandi og það mætti æra óstöðugan að benda á einhvern sérstakan. Hér á hið fornkveðna vel við, leitið og þér munuð finna.

Að þessu sinni var gist á Hilton-hótelinu við Schiphol-flugvöll. Það er vel í sveit sett og gaman er að borða rib-eye steik á Bowery-veitingastað hótelsins. Fínn staður með afbragðsþjónustu, en í dýrari kantinum.

Mester Cukraszda í Marcali

Ungverjaland býður ekki aðeins upp á afbragðs gúllash-súpu heldur má víða fá fína rib-eye steik. Bestu, skemmtilegustu og dýrustu staðirnir eru að sjálfsögðu í Búdapest, til að mynda kúbverski staðurinn La Bodeguita Del Medio á horni Dob og Kertesz-götu nánast í miðbænum, en góðar steikur má finna á ólíklegustu stöðum.

Einn þessara vetingastaða er Mester Étterem & Cukrászda í miðbæ Marcali, skammt sunnan við vesturhluta Balaton-vatns. Rib-eye steikin þar hefur aldrei klikkað og eru þær orðnar nokkrar.

Mester Étterem & Cukrászda leggur mikið upp úr framsetningu.
Mester Étterem & Cukrászda leggur mikið upp úr framsetningu. mbl.is/SG

Goldhorn í Berlín

Í yfirreið ársins var víða komið við. Sumir „ferðamannamatstaðir“ voru einmitt það, lokkandi en ekkert meira. Þá ber að forðast.

Þétt setinn veitingastaður dag eftir dag er hins vegar merki um gæði og Goldhorn-steikhúsið skammt frá Kurfürstendamm í Berlín, ekki langt frá aðalinngangi dýragarðsins, fær hæstu einkunn. Úrvalið er mikið, dýrðin kostar sitt en mikið er gaman að geta leyft sér svona munað þó ekki sé nema endrum og sinnum. Frábær staður í alla staði og bara það að nefna hann kallar fram bragðið góða.

Fallega framsett steik á Goldhorn-steikhúsinu í Berlín. Þessi steik stóð …
Fallega framsett steik á Goldhorn-steikhúsinu í Berlín. Þessi steik stóð upp úr að mati blaðamanns - besta steikin og mesta úrvalið. mbl.is/SG

La Bonne Auberge í Glasgow

Glasgow breyttist mikið við það að vera menningarborg Evrópu 1990 og þess sjást ekki síst merki í veitingaflórunni. Margir góðir veitingastaðir eru í borginni. Blaðamaður hefur reglulega fengið sér rib-eye á La Bonne Auberge, sem er í sama húsi og hótelið Holiday Inn Glasgow Theatreland í nágrenni við nokkur leikhús og aðalrútubílastöðina, rétt ofan við Sauchiall-göngugötuna.

Það er eitthvað svo fágað við umhverfið og það gerir þennan margverðlaunaða veitingastað sérstakan. Steikin er líka alltaf sérstaklega mjúk og bráðnar í munni.

Hvönn Brasserie í Þórshöfn

Skerpukjötið klikkar ekki í Færeyjum en þar má líka fá afbragðs rib-eye.

Steikin á Hvönn Brasserie á Hótel Tórshavn var góð og borin fram með rauðkáli. Ekki fengið þá blöndu áður. Vissulega var steikin betri á dýrari stöðum en andrúmsloftið þarna við höfnina var vinalegt og kallaði á mann, eins og reyndar allt sem færeyskt er.

Eldhúsið í Vesturbænum

Til þess að viðhalda venjunni er blaðamaður reglulega með rib-eye í matinn. Þetta er í raun einn helsti munaðurinn, sem hægt er að leyfa sér á heimaslóðum. Með smjörsteiktum sveppum og bakaðri kartöflu. Algjör unaður. Kristján Þór Sigfússon, fyrrverandi eigandi Argentínu steikhúss og einn helsti kjötsérfræðingur landsins, hefur verið sannfærandi þegar hann segir að innlenda kjötið sé best, en innflutta nautakjötið fær líka góð meðmæli hjá blaðamanni.

Niðurstaðan úr þessari yfirferð er að það er erfitt að eyðileggja rib-eye steik sé helstu reglum um steikingu fylgt. Til eru matstaðir sem færa gestum skósóla biðji þeir um vel steikta steik, en „medium rare“ á ekki að klikka.

Meðlætið fer eftir hverjum og einum, en þessum matháki þykir best að hafa hlutina sem einfaldasta og forðast að drekkja góðri steik í sósu, þó sósan sé góð, eða kaffæra hana í einhverju öðru.

Steinþór gerði vel við sig heima fyrir á 17 júní.
Steinþór gerði vel við sig heima fyrir á 17 júní. mbl.is/SG
Kúbverski staðurinn La Bodeguita Del Medio í Ungverjalandi.
Kúbverski staðurinn La Bodeguita Del Medio í Ungverjalandi. mbl.is/SG
Steik á Möltu. Incognito á mörkuðum Qawra og Buggiba.
Steik á Möltu. Incognito á mörkuðum Qawra og Buggiba. mbl.is/SG
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert